„Jón Guðmundsson (Uppsölum-vestri)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 12: | Lína 12: | ||
1. Guðríður Jónsdóttir, f. 15. desember 1899, d. 27. janúar 1904.
| 1. Guðríður Jónsdóttir, f. 15. desember 1899, d. 27. janúar 1904.

2. Jónína Guðmunda Jónsdóttir húsfreyja á Guðnastöðum, f. 5. júní 1902, d. 16. júní 1969.
| 2. Jónína Guðmunda Jónsdóttir húsfreyja á Guðnastöðum, f. 5. júní 1902, d. 16. júní 1969.

3. [[Marta Jónsdóttir (Heiðarvegi)|Marta Jónsdóttir]] húsfreyja, f. 6. maí 1905, d. 27. ágúst 1957.
| 3. [[Marta Jónsdóttir (Heiðarvegi 25)|Marta Jónsdóttir]] húsfreyja, f. 6. maí 1905, d. 27. ágúst 1957.

4. Gestrós Jónsdóttir, f. 6. febrúar 1907, d. 2. desember 1907.
| 4. Gestrós Jónsdóttir, f. 6. febrúar 1907, d. 2. desember 1907.

5. Gestur Jónsson verkamaður í Reykjavík, f. 16. apríl 1908, d. 1. febrúar 1999.
| 5. Gestur Jónsson verkamaður í Reykjavík, f. 16. apríl 1908, d. 1. febrúar 1999.

Útgáfa síðunnar 5. mars 2021 kl. 09:47
Jón Guðmundsson bóndi í Búðarhóls-Austurhjáleigu í A-Landeyjum, síðar verkamaður á Uppsölum-vestri fæddist 18. október 1878 í Hólmahjáleigu í A-Landeyjum og lést 24. júlí 1953.
Foreldrar hans voru Guðmundur Ólafsson bóndi í Hólmahjáleigu, f. 30. október 1840 í Vestritungu í V.-Landeyjum, drukknaði við Kirkjulandssand 30. apríl 1879, og síðari kona hans Ingiríður Vormsdóttir frá Miðeyjarhólmi í A-Landeyjum, húsfreyja, f. 28. ágúst 1841, d. 3. janúar 1915.
Jón var skamma stund með foreldrum sínum, en faðir hans drukknaði, er Jón var á fyrsta ári sínu. Hann var með ekkjunni móður sinni, bónda í Austurhjáleigu (þ.e. Búðarhóls-Austurhjáleigu) 1880 og 1890.
Þau Valgerður giftu sig 1899, eignuðust átta börn og ólu upp eitt fósturbarn, en misstu fjögur barna sinna á ungum aldri. Þau bjuggu í Búðarhóls-Austurhjáleigu (Hólavatni) 1901-1931 og 1932-1940.
Jón var í hreppsnefnd Austur-Landeyjahrepps 1901-1916.
Þau Valgerður fluttu til Eyja 1941 og bjuggu á Uppsölum-vestri við Vestmannabraut 51b. Jón stundaði verkamannavinnu.
Jón lést 1953 og Valgerður 1955.
I. Kona Jóns, (6. júlí 1899), var Valgerður Gestsdóttir frá Króki (Efri-Fljótum) í Meðallandi, V.-Skaft., húsfreyja, f. 17. september 1870, d. 20. janúar 1955.
Börn þeirra:
1. Guðríður Jónsdóttir, f. 15. desember 1899, d. 27. janúar 1904.
2. Jónína Guðmunda Jónsdóttir húsfreyja á Guðnastöðum, f. 5. júní 1902, d. 16. júní 1969.
3. Marta Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. maí 1905, d. 27. ágúst 1957.
4. Gestrós Jónsdóttir, f. 6. febrúar 1907, d. 2. desember 1907.
5. Gestur Jónsson verkamaður í Reykjavík, f. 16. apríl 1908, d. 1. febrúar 1999.
6. Helga Jónsdóttir, f. 2. desember 1909, d. 6. janúar 1910.
7. Magnea Jónsdóttir húsfreyja, f. 29. mars 1911, d. 31. desember 1992.
8. Ingólfur Jónsson, f. 2. nóvember 1915, d. 10. júní 1917.
Fóstursonur hjónanna var
9. Sigurður Júlíusson vörubílstjóri í Reykjavík, f. 4. desember 1917, d. 14. febrúar 1984.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.