„Guðjón Jónsson (Framnesi)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
m (Verndaði „Guðjón Jónsson (Framnesi)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 8. mars 2019 kl. 12:49
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðjón Jónsson“
Guðjón Pétur Jónsson, Framnesi, fæddist 22. febrúar 1885 að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum og lést 24. janúar 1945.
Foreldrar hans voru Guðbjörg Guðmundsdóttir og Jón Ísaksson.
Guðjón ólst upp á Kirkjubæ og byrjaði snemma að stunda sjómennsku. Hann byrjaði formennsku á Nörrónu árið 1909 en var aðeins formaður eina vertíð. Sjómennsku stundaði hann þó fram til ársins 1935.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
- Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
- Íslendingabók.is.
Frekari umfjöllun
Guðjón Pétur Jónsson skipstjóri, sjómaður í Framnesi fæddist 20. febrúar 1885 á Kirkjubæ og lést 24. janúar 1945.
Foreldrar hans voru Jón Ísaksson frá Norðurgarði, bóndi á Kirkjubæ, f. 11. mars 1859, hrapaði til bana í Ystakletti 20. ágúst 1890, og kona hans Guðbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 31. ágúst 1858 í Smiðjunni, d. 18. ágúst 1924.
Guðjón var með foreldrum sínum í frumbernsku, en hann missti föður sinn 1890.
Hann var með ekkjunni móður sinni á Kirkjubæ 1890 og enn 1901.
Þau Nikólína giftu sig 1905, bjuggu í Framnesi þá og síðan, eignuðust fimm börn, en misstu eitt þeirra í frumbernsku.
Guðjón var skipstjóri stutta stund, en var sjómaður starfsævi sína.
Guðjón lést 1945 og Nikólína 1950.
I. Kona Guðjóns Péturs, (16. desember 1905), var Níkólínu Guðnadóttur frá Bartakoti í Árnessýslu, húsfreyja, f. 20. ágúst 1874, d. 19. nóvember 1950.
Börn þeirra:
1. Stefanía Jónína Guðjónsdóttir, f. 18. janúar 1904, d. fyrir 1906.
2. Guðrún Marín Guðjónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 19. ágúst 1905, d. 3. mars 1983.
3. Guðbjörg Anný Guðjónsdóttir húsfreyja, ljósmóðir í Villingaholtshreppi, f. 17. október 1908, d. 12. maí 1993.
4. Sigurður Guðjónsson sjómaður, stýrimaður, f. 3. nóvember 1911 í Framnesi, d. 5.
maí 1955.
5. Guðlín Guðný Guðjónsdóttir, f. 24. mars 1913, d. 19. maí 1970.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.