„Steinn Ingvarsson (Múla)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|150px|''Steinn Ingvarsson. '''Steinn Ingvarsson''' á Múla, bóndi, verkamaður, framfærslufulltrúi fæddist 23. október 1892 að Mi...)
 
m (Verndaði „Steinn Ingvarsson (Múla)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 16. febrúar 2019 kl. 21:23

Mynd:Steinn Ingvarsson.jpg
Steinn Ingvarsson.

Steinn Ingvarsson á Múla, bóndi, verkamaður, framfærslufulltrúi fæddist 23. október 1892 að Minna-Hofi á Rangárvöllum og lést 1. mars 1983.
Foreldrar hans voru Ingvar Ólafsson bóndi, bókbindari, f. 26. apríl 1868 á Voðmúlastöðum í A-Landeyjum, d. 16. apríl 1942, og kona hans Sigríður Steinsdóttir húsfreyja, ljósmóðir, f. 29. desember 1872 á Minna-Hofi, d. 13. maí 1956.

Bróðir Steins í Eyjum var:
1. Guðmundur Ingvarsson verslunarmaður, f. 25. ágúst 1904, d. 10. mars 1986.

Steinn var með foreldrum sínum til fullorðinsára. Hann varð bóndi á Reynifelli á Rangárvöllum 1921-1924.
Hann fluttist til Eyja 1924 og giftist Þorgerði á því ári. Þau eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Múla á giftingarári sínu og síðan.
Steinn var verkamaður í Eyjum, dyravörður við kvikmyndasýningar í Samkomuhúsinu árum saman, varð framfærslufulltrúi bæjarfélagsins og ráðsmaður Sjúkrahússins 1938-1962.
Steinn lést 1983 og Þorgerður 1990.

I. Kona Steins, (10. maí 1924), var Þorgerður Vilhjálmsdóttir frá Múla, húsfreyja, f. 12. ágúst 1903 á Oddsstöðum, d. 29. september 1990.
Börn þeirra:
1. Sigríður Steinsdóttir húsfreyja, f. 1. mars 1925. Maður hennar var Sveinn Hróbjartur Magnússon sjómaður, smiður, lögreglumaður, handavinnukennari, f. 22. júlí 1921, d. 26. september 2008.
2. Jóna Guðbjörg Steinsdóttir, f. 6. júní 1928, d. 30. janúar 2019. Maður hennar er Hilmar Guðlaugsson múrari, f. 2. desember 1930, d. 30. janúar 2019.
3. Guðbjörg Þóra Steinsdóttir, f. 20. mars 1931. Maður hennar er Finnbogi Árnason rafvirkjameistari, f. 5. maí 1930.
4. Guðrún Steinsdóttir, f. 22. september 1935, d. 7. október 2017. Maður hennar er Jóhann Guðmundur Ólafsson sjómaður, verkstjóri, f. 15. apríl 1935, d. 7. október 2007.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.