„Dráttarbraut Vestmannaeyja“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 9: Lína 9:
*[[Ársæll Sveinsson]] útgerðarmaður [[Fagrabrekka|Fögrubrekku]],  
*[[Ársæll Sveinsson]] útgerðarmaður [[Fagrabrekka|Fögrubrekku]],  
*[[Guðmundur Jónsson]] [[Háeyri]],  
*[[Guðmundur Jónsson]] [[Háeyri]],  
*[[Gunnar M. Jónsson]] [[Brúarhús]]i,  
*[[Gunnar Marel Jónsson]] [[Brúarhús]]i,  
*[[Hannes Hansson]] [[Hvoll|Hvoli]],  
*[[Hannes Hansson]] [[Hvoll|Hvoli]],  
*[[Ólafur Ingileifsson]] [[Víðivellir|Víðivöllum]],  
*[[Ólafur Ingileifsson]] [[Víðivellir|Víðivöllum]],  

Útgáfa síðunnar 7. júlí 2006 kl. 08:52

Þann 21. maí árið 1925 var settur fundur á Borg með þeim tilgangi að koma á fót félagsskap til að byggja slipp eða dráttarbraut í Vestmannaeyjum fyrir litla báta og skip. Á fundinn mættu:

Slippurinn í desember 1973.

Fékk félagið nafnið Dráttarbraut Vestmannaeyja hf. og er með elstu hlutafélögum í Vestmannaeyjum. Eftir að búið var að stofna félagið var Gunnar Marel Jónsson forstöðumaður. Ákveðið var að senda hann til Noregs til þess að leita eftir tilboði í braut handa félaginu. Ferðin gekk vel og fyrirtækið Mjölnir í Bergen smíðaði vagninn og spilið.

Fyrsti báturinn var tekinn upp um haustið 1925. Hann hét Garðar. Í honum átti Filippus Árnason hlut, en hann átti einnig síðasta bátinn sem fór á flot af þessari braut þrjátíu og fjórum árum seinna, Létti. Dráttarbraut Vestmannaeyja þjónustaði bátaflotann í Vestmannaeyjum í um 60 ár.


Heimildir

  • Eggert Gunnarsson. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1985.