„Guðný Ingibjörg Einarsdóttir“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Guðný Ingibjörg Einarsdóttir''' frá Siglufirði, húsfreyja á Reyni og Brattlandi fæddist 22. desember 1918 í Bolungarvík og lést í september 1939.<br> Fo...) |
m (Verndaði „Guðný Ingibjörg Einarsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 14. mars 2018 kl. 15:32
Guðný Ingibjörg Einarsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja á Reyni og Brattlandi fæddist 22. desember 1918 í Bolungarvík og lést í september 1939.
Foreldrar hennar voru Einar Teitsson vélsmiður í Búð H. Örnólfss. II í Bolungarvík 1920, síðar járn- og trésmiður á Siglufirði, f. 21. febrúar 1890 á Skarði í V-Hún., d. 25. nóvember 1932, og kona hans Sigríður Ingimundardóttir húsfreyja, saumakona, f. 20. apríl 1896 í Bolungarvík, d. 3. október 1989.
Guðný var með foreldrum sínum í Bolungarvík og á Siglufirði.
Þau Kristján giftu sig, bjuggu á Reyni við fæðingu Guðmundar Einars 1937, síðar á Brattlandi við Faxastíg.
Guðný lést 1939.
I. Maður Guðnýjar Ingibjargar var Kristján Guðmundsson verkamaður, síðar bóndi, f. 2. desember 1911 í Reykjavík, d. 16. apríl 1979.
Barn þeirra:
1. Guðmundur Einar Kristjánsson frá Ártúni, verkamaður, f. 14. september 1937 á Reyni, d. 2. maí 1977.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.