„Bjarni Ólafsson (Keldudal)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Eyvindur ''Bjarni'' Ólafsson''' sjómaður fæddist 11. september 1913 í Keldudal í Mýrdal og lést 8. júní 1981.<br> Foreldrar hans voru Ólafur Bjarnason (Keldudal)|Ólaf...) |
m (Verndaði „Bjarni Ólafsson (Keldudal)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 6. mars 2018 kl. 14:27
Eyvindur Bjarni Ólafsson sjómaður fæddist 11. september 1913 í Keldudal í Mýrdal og lést 8. júní 1981.
Foreldrar hans voru Ólafur Bjarnason bóndi, f. 20. apríl 1866 í Engigarði í Mýrdal, d. 16. september 1952, og kona hans Guðrún Dagbjartsdóttir húsfreyja, f. 22. maí 1874, d. 3. febrúar 1941.
Börn Ólafs og Guðrúnar í Eyjum:
1. Jórunn Sigurlín Ólafsdóttir húsfreyja í Kirkjudal, f. 12. nóvember 1903, d. 29. maí 1995.
2. Bjarngerður Ólafsdóttir húsfreyja á Heiði, f. 11. júní 1907, d. 20. febrúar 1996.
3. Eyvindur Bjarni Ólafsson
Bjarni var með foreldrum sínum í æsku, í Keldudal til 1921, í Hryggjum 1921-1922, á Ketilsstöðum 1922-1929.
Hann fluttist frá Keldudal til Eyja 1929, var vinnumaður hjá Jóni Sverrissyni í Dölum 1930, síðan sjómaður, bjó lengi á Staðarfelli.
Að síðustu dvaldi hann á Hrafnistu í Reykjavík og lést 1981.
Bjarni var ókvæntur.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.