„Elínborg Jónína Björnsdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Elínborg Jónína Björnsdóttir“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 10: Lína 10:
Maður Elínborgar Jónínu var [[Ágúst Ólafsson (vélstjóri)|Ágúst Ólafur Ólafsson]] vélstjóri, f. 14. ágúst 1899, d. 14. maí 1976.

Maður Elínborgar Jónínu var [[Ágúst Ólafsson (vélstjóri)|Ágúst Ólafur Ólafsson]] vélstjóri, f. 14. ágúst 1899, d. 14. maí 1976.

Börn þeirra:

Börn þeirra:

1. [[Erling Adólf Ágústsson]], f. 9. ágúst 1930 [[Nýhöfn|Nýhöfn, (Skólavegi 23)]], d. 8. janúar 1999.

1. [[Erling Adólf Ágústsson]], f. 9. ágúst 1930 í [[Nýhöfn|Nýhöfn, (Skólavegi 23)]], d. 8. janúar 1999.

2. [[Ágústa Ágústsdóttir (Brekastíg 24)|Ágústa Ágústsdóttir]], f. 23. september 1945 á Brekastíg 24.

2. [[Ágústa Ágústsdóttir (Brekastíg 24)|Ágústa Ágústsdóttir]], f. 23. september 1945 á Brekastíg 24.

{{Heimildir|
{{Heimildir|

Útgáfa síðunnar 4. nóvember 2016 kl. 21:21

Elínborg Jónína Björnsdóttir húsfreyja á Brekastíg 24 fæddist 5. október 1913 í Efranesi á Skaga í Skagafjarðarsýslu og lést 10. desember 1969.
Foreldrar hennar voru Björn Jóhannesson bóndi, f. 14.. apríl 1873 í Kelduvík á Skaga, d. 16. febrúar 1952 í Víkum þar, og kona hans Kristín Sveinsdóttir húsfreyja, síðar í Eyjum, f. 4. mars 1878 á Selnesi á Skaga, d. 12. mars 1945 í Eyjum.

Elínborg var með foreldrum sínum í Efranesi á Skaga 1920.
Þau skildu 1924 og hún fylgdi móður sinni til Eyja 1926.
Hún var með vinnukonunni móður sinni á Miðhúsum 1927, var unnusta Ágústs á Brekastíg 33 1930.
Þau Ágúst giftu sig og festu kaup á Brekastíg 24, stækkuðu húsið og bjuggu þar framvegis.
Elínborg lést 1969, en Ágúst fluttist til Erlings í Njarðvíkur við Gos og lést 1976.

Maður Elínborgar Jónínu var Ágúst Ólafur Ólafsson vélstjóri, f. 14. ágúst 1899, d. 14. maí 1976.
Börn þeirra:
1. Erling Adólf Ágústsson, f. 9. ágúst 1930 í Nýhöfn, (Skólavegi 23), d. 8. janúar 1999.
2. Ágústa Ágústsdóttir, f. 23. september 1945 á Brekastíg 24.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Manntöl.
• Prestþjónustubækur.
• Skagfirskar æviskrár – Tímabilið 1890-1910. Margir höfundar. Ritstjóri: Eiríkur Kristinsson. Sögufélag Skagfirðinga, Sauðárkróki 1964-1972.

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.