„Engilbert Ágúst Guðmundsson“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Engilbert Ágúst Guðmundsson“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 10: | Lína 10: | ||
Börn þeirra:
| Börn þeirra:

1. [[Kristín Jóhanna Engilbertsdóttir]] húsfreyja í Reykjavík, f. 5. nóvember 1923 í Litlabæ, d. 25. desember 1980.
| 1. [[Kristín Jóhanna Engilbertsdóttir]] húsfreyja í Reykjavík, f. 5. nóvember 1923 í Litlabæ, d. 25. desember 1980.

2. [[Guðjóna Ásta Engilbertsdóttir]], f. 19. desember 1926 í Litlabæ, d. 28. apríl 2012.
| 2. [[Ásta Engilbertsdóttir (Litlabæ)|Guðjóna Ásta Engilbertsdóttir]], f. 19. desember 1926 í Litlabæ, d. 28. apríl 2012.

3. [[Ágústa Margrét Engilbertsdóttir]], síðast í Reykjavík, f. 24. september 1929 í Litlabæ, d. 30. janúar 2006.
| 3. [[Ágústa Margrét Engilbertsdóttir]], síðast í Reykjavík, f. 24. september 1929 í Litlabæ, d. 30. janúar 2006.

4. Dagný Engilbertsdóttir, f. 16. september 1932 í Litlabæ, d. 21. nóvember 1932.
| 4. Dagný Engilbertsdóttir, f. 16. september 1932 í Litlabæ, d. 21. nóvember 1932.

Útgáfa síðunnar 20. janúar 2016 kl. 12:20
Engilbert Ágúst Guðmundsson bátasmiður fæddist 4. ágúst 1899 á Dysjum á Álftanesi og lést 2. desember 1945 á Vífilsstöðum.
Foreldrar hans voru Guðmundur Grímsson bóndi á Dysjum, síðar sjómaður og smiður í Reykjavík, f. 26. júlí 1878 á Álftanesi, drukknaði 20. febrúar 1913, og kona hans Þóra Bjanadóttir húsfreyja, síðar bústýra á Nýlendu, f. 9. september 1865 í Gljúfurárholti í Ölfusi, d. 5. nóvember 1942.
Þóra Bjarnadóttir móðir Engilberts var bústýra á Nýlendu 1910 og þar var einnig systir hans Bríet Guðrún Guðmundsdóttir 13 ára.
Engilbert Ágúst var nýkvæntur leigjandi í Litlabæ með konu sinni Kristínu 1923. Þau bjuggu í Litlabæ, eignuðst 3 börn sín þar á 3. áratugi aldarinnar og 3 á 4. áratugi.
Engilbert vann við bátasmíði, en síðar við verslun. Hann varð sjúklingur. Vegna sjúkleika hans fluttust þau Suður 1945 og hann var lagður inn á Vífilsstaði, en Kristín fékk þar vinnu. Engilbert Ágúst lést þar í desember. Kristín lést 1991.
Kona Engilberts Ágústs, (30. júní 1923), var Kristín Ástgeirsdóttir húsfreyja, f. 9. ágúst 1900, d. 19. janúar 1991.
Börn þeirra:
1. Kristín Jóhanna Engilbertsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 5. nóvember 1923 í Litlabæ, d. 25. desember 1980.
2. Guðjóna Ásta Engilbertsdóttir, f. 19. desember 1926 í Litlabæ, d. 28. apríl 2012.
3. Ágústa Margrét Engilbertsdóttir, síðast í Reykjavík, f. 24. september 1929 í Litlabæ, d. 30. janúar 2006.
4. Dagný Engilbertsdóttir, f. 16. september 1932 í Litlabæ, d. 21. nóvember 1932.
5. Eyþór Engilbertsson, f. 24. september 1938 í Litlabæ, d. 2. mars 1939.
6. Óskar Jörundur Engilbertsson, f. 24. desember 1940 í Litlabæ, d. 1. nóvember 2000.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Bára Ægisdóttir.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.