„Jón Ísak Sigurðsson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 5: | Lína 5: | ||
[[Mynd:KG-mannamyndir 12296.jpg|thumb|250px|Jón ungur að árum.]] | [[Mynd:KG-mannamyndir 12296.jpg|thumb|250px|Jón ungur að árum.]] | ||
'''Jón Ísak Sigurðsson''' fæddist í [[Merkisteinn|Merkisteini]] í Vestmannaeyjum 7. nóvember 1911 og lést 28. júní 2000. Foreldrar hans voru [[Sigurður Björnsson]] bátasmiður og Sigríður Árnadóttir. Árið 1939 kvæntist Jón [[Klara Friðriksdóttir|Klöru Friðriksdóttur]] frá [[Látrar|Látrum]] í Vestmannaeyjum. Þau eignuðust fjögur börn, [[Friðrik Jónsson (yngri)|Friðrik]], [[Svava Sigríður Jónsdóttir|Svövu Sigríði]], [[Guðjón Jónsson (Látrum)|Guðjón Þórarinn]] og [[Ragnar Jónsson|Ragnar]]. | '''Jón Ísak Sigurðsson''' fæddist í [[Merkisteinn|Merkisteini]] í Vestmannaeyjum 7. nóvember 1911 og lést 28. júní 2000. Foreldrar hans voru [[Sigurður Björnsson]] bátasmiður og [[Sigríður Árnadóttir (Merkisteini)|Sigríður Árnadóttir]]. Árið 1939 kvæntist Jón [[Klara Friðriksdóttir|Klöru Friðriksdóttur]] frá [[Látrar|Látrum]] í Vestmannaeyjum. Þau eignuðust fjögur börn, [[Friðrik Jónsson (yngri)|Friðrik]], [[Svava Sigríður Jónsdóttir|Svövu Sigríði]], [[Guðjón Jónsson (Látrum)|Guðjón Þórarinn]] og [[Ragnar Jónsson|Ragnar]]. | ||
Að loknu barnaskólaprófi fór Jón í unglingaskóla sem þá var starfræktur í Eyjum. Seinna, árið 1933, lauk hann prófi frá vélstjórnarnámskeiði sem veitti 50 hestafla réttindi sem síðar voru hækkuð í 250 hestöfl. | Að loknu barnaskólaprófi fór Jón í unglingaskóla sem þá var starfræktur í Eyjum. Seinna, árið 1933, lauk hann prófi frá vélstjórnarnámskeiði sem veitti 50 hestafla réttindi sem síðar voru hækkuð í 250 hestöfl. |
Útgáfa síðunnar 30. desember 2015 kl. 18:07
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Sigurðsson“
Jón Ísak Sigurðsson fæddist í Merkisteini í Vestmannaeyjum 7. nóvember 1911 og lést 28. júní 2000. Foreldrar hans voru Sigurður Björnsson bátasmiður og Sigríður Árnadóttir. Árið 1939 kvæntist Jón Klöru Friðriksdóttur frá Látrum í Vestmannaeyjum. Þau eignuðust fjögur börn, Friðrik, Svövu Sigríði, Guðjón Þórarinn og Ragnar.
Að loknu barnaskólaprófi fór Jón í unglingaskóla sem þá var starfræktur í Eyjum. Seinna, árið 1933, lauk hann prófi frá vélstjórnarnámskeiði sem veitti 50 hestafla réttindi sem síðar voru hækkuð í 250 hestöfl.
Jón á Látrum, eða Jón lóðs eins og hann var oft kallaður, var hafnsögumaður í tugi ára. Jón sat í bæjarstjórn á vegum Sjálfstæðisflokksins um árabil og var formaður hafnarstjórnar í áratugi. Ýmsum fleiri ábyrgðarstöðum gegndi hann, lengi í stjórn Bátaábyrgðarfélagsins, formaður í Björgunarfélagi Vestmannaeyja í 28 ár, formaður í Starfsmannafélagi Vestmannaeyja í 20 ár og ræðismaður Norðmanna um langt skeið svo nokkuð sé nefnt. Þá var Jón einn af hvatamönnum þess að reyndur var svifnökkvi - loftpúðaskip milli lands og Eyja.
Jón Ísak var kjörinn heiðursborgari Vestmannaeyja á 75 ára afmæli kaupstaðarins, þann 14. febrúar 1994.
Sjá einnig Blik 1957/Hafnsögumannsstörfin áður fyrr, grein eftir Jón Ísak. Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Jón Ísak Sigurðsson
Heimildir
- Morgunblaðið, 15. júlí 2000. Minningargreinar um Jón Ísak Sigurðsson.