„Ritverk Árna Árnasonar/Ágúst Ólafsson (Gíslholti)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 14: | Lína 14: | ||
Börn Ágústs og Nönnu:
| Börn Ágústs og Nönnu:

1. [[Jóhann Grétar Ágústsson]], f. 7. júní 1955, ókvæntur.
| 1. [[Jóhann Grétar Ágústsson]], f. 7. júní 1955, ókvæntur.

2. [[Jóna Kristín Ágústsdóttir]], f. 9. ágúst 1857, | 2. [[Jóna Kristín Ágústsdóttir]], f. 9. ágúst 1857, d. 18. október 2016. Maður hennar var [[Birgir Guðjónsson|Magnús Birgir Guðjónsson]], f. 13. júlí 1949.

3. [[Salbjörg Ágústsdóttir]], f. 24. febrúar 1959, gift [[Ósvald Tórshamar|Ósvaldi Tórshamar]].
| 3. [[Salbjörg Ágústsdóttir|Ágústa Salbjörg Ágústsdóttir]], f. 24. febrúar 1959, gift [[Ósvald Tórshamar|Ósvaldi Tórshamar]].

4. [[Jenný Ágústsdóttir]], f. 2. janúar 1961, ógift.
| 4. [[Jenný Ágústsdóttir]], f. 2. janúar 1961, ógift.

5. [[Ólafur Gísli Ágústsson]], f. 15. ágúst 1965, kvæntur [[Bára Kristinsdóttir|Báru Kristinsdóttur]] [[Kristinn Kristinsson (Miðhúsum)|Kristinssonar]] [[Kristinn Ástgeirsson|Ástgeirssonar]], ættuð frá [[Miðhús]]um. Þau skildu.
| 5. [[Ólafur Gísli Ágústsson]], f. 15. ágúst 1965, kvæntur [[Bára Kristinsdóttir|Báru Kristinsdóttur]] [[Kristinn Kristinsson (Miðhúsum)|Kristinssonar]] [[Kristinn Ástgeirsson|Ástgeirssonar]], ættuð frá [[Miðhús]]um. Þau skildu.

Útgáfa síðunnar 12. desember 2016 kl. 19:15
Kynning.
Ágúst Ólafsson frá Gíslholti fæddist 1. ágúst 1927 og lést 29. júlí 2003.
Foreldrar hans voru Ólafur Vigfússon formaður í Gíslholti, f. 21. ágúst 1891, d. 15. maí 1974 og kona hans Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 22. mars 1898, d. 19. apríl 1969.
Ágúst var smiður og smábátaútgerðarmaður („trillukarl“), f. 1. ágúst 1927, dáinn 29. júlí 2003.
Kona Ágústs var Nanna Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 27. september 1928.
Þau Ágúst giftust 31. desember 1954.
Ágúst hafði byggt hluta íbúðarhússins að Austurvegi 22, er þau kynntust, og fluttust þau í húsið 1955.
Við Gos fluttu þau til Reykjavíkur, síðan í Hveragerði, en voru komin til Eyja innan árs.
Bjuggu þau að Heiðarvegi 61.
Börn Ágústs og Nönnu:
1. Jóhann Grétar Ágústsson, f. 7. júní 1955, ókvæntur.
2. Jóna Kristín Ágústsdóttir, f. 9. ágúst 1857, d. 18. október 2016. Maður hennar var Magnús Birgir Guðjónsson, f. 13. júlí 1949.
3. Ágústa Salbjörg Ágústsdóttir, f. 24. febrúar 1959, gift Ósvaldi Tórshamar.
4. Jenný Ágústsdóttir, f. 2. janúar 1961, ógift.
5. Ólafur Gísli Ágústsson, f. 15. ágúst 1965, kvæntur Báru Kristinsdóttur Kristinssonar Ástgeirssonar, ættuð frá Miðhúsum. Þau skildu.
6. Jón Eysteinn Ágústsson, f. 19. október 1970.
Úr fórum Árna Árnasonar símritara: Bjargveiðimannatal.
Ágúst er lágur vexti, en nokkuð þrekinn og feitlaginn, búlduleitur, dökkhærður og frísklegur í ásýnd. Hann er prúðmannlegur í framkomu, stilltur og gætinn í orðum, léttur í lund, snar í hreyfingum; ágætur félagi og skemmtilegur.
Hann er fremur ungur veiðimaður, en hefur náð góðum árangri, alls óhræddur og virkar jafnvel full kæruleysislega og um of kaldrifjaður við bjarggöngu, en reyndin er sú, að hann fer gætilega, en er alls ósmeykur. Bendir þar til staður á austurbrúninni fram af gamla kofanum, mjög tæpur staður á örmjóum bergfláa; þar veiðir Ágúst ca. metra fyrir neðan brún og unir sér vel. Ágúst er kappsfullur og fyrirhyggjumaður og hefir verið fyrirliði núverandi Suðureyjarfélags, vellátinn af félögum sínu.
Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Nanna Guðjónsdóttir.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.