„Ólafur Gíslason (Ottahúsi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Ólafur Gíslason''' sjómaður fæddist 13. nóvember 1803 og lést 4. júní 1855.<br> Foreldrar hans voru Gísli Jónsson bóndi í Hallgeirsey og Kanastöðum í A-Landeyjum, f...)
 
m (Verndaði „Ólafur Gíslason (Ottahúsi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 8. mars 2015 kl. 20:19

Ólafur Gíslason sjómaður fæddist 13. nóvember 1803 og lést 4. júní 1855.
Foreldrar hans voru Gísli Jónsson bóndi í Hallgeirsey og Kanastöðum í A-Landeyjum, f. 1769 í Hallgeirseyjarhjáleigu, d. 19. júlí 1846 í Hallgeirsey, og fyrri kona hans Margrét Jónsdóttir húsfreyja, skírð 12. nóvember 1775, d. 13. september 1859 í Hallgeirsey.

Bróðir Ólafs var Jón Gíslason bóndi í Stakkagerði, skírður 11. mars 1797, d. 23. desember 1865.

Ólafur var kominn til Eyja 1831 og var þá haustmaður í Stakkagerði, einnig 1832 og 1834, 1835 var hann fyrirvinna hjá Guðrúnu Hallsdóttur ekkju í Þorlaugargerði, fyrirvinna hjá Helgu Stefánsdóttur ekkju í Stóra-Gerði 1837-1839, fyrirvinna hjá Sigþrúði Jónsdóttur ekkju í Þorlaugargerði. Hann var vinnumaður í Grímshjalli 1840, „sjálfs sín“ í Beykishjalli 1841-1843, í Sæmundarhjalli 1844, sjómaður í Nýjabæjarhjalli 1845 og 1846, vinnumaður hjá Jóni bróður sínum í Stakkagerði 1847-1850, „sjálfs sín“ í Götu 1851, í Stakkagerði 1854
Ólafur var ókvæntur.
Hann lést í Ottahúsi 1855.

I. Barnsmóðir, eftir dauða hans, var skráð Margrét Ólafsdóttir frá Kirkjubæ, f. 9. október 1828, d. 15. júní 1890, ráðskona hjá Kohl sýslumanni. Alþýðuraddir töldu Eggert son Kohls.
1. Eggert Guðmundur Ólafsson í Götu, síðar í Vesturheimi, f. 1. nóvember 1855, d. 2. desember 1918.


Heimildir