„Bjarni Jóhannes Jónsson (Steinmóðshúsi)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Bjarni Jóhannes Jónsson''' (líka nefndur Bjarni Jóhann og Jóhannes Bjarni) tómthúsmaður í Vík í Mýrdal fæddist 22. júlí 1869 í Steinmóðshúsi og lést 10. ja...) |
m (Verndaði „Bjarni Jóhannes Jónsson (Steinmóðshúsi)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 15. október 2014 kl. 20:37
Bjarni Jóhannes Jónsson (líka nefndur Bjarni Jóhann og Jóhannes Bjarni) tómthúsmaður í Vík í Mýrdal fæddist 22. júlí 1869 í Steinmóðshúsi og lést 10. janúar 1960.
Foreldrar hans voru Jón Hannesson húsmaður í Steinmóðshúsi, f. 1828, d. 1895, og Sigríður Steinmóðsdóttir, síðar húsfreyja, f. 20. desember 1842, d. 12. febrúar 1924.
Bjarni Jóhannes var með foreldrum sínum í Steinmóðshúsi í frumbernsku.
Hann fluttist með þeim undir Eyjafjöll 1870, var niðursetningur í Efri-Rotum þar 1870, í Varmahlíð þar 1880, en móðir hans var þar vinnukona, léttadrengur í Varmahlíð 1890.
Hann fluttist að Haugnum í Mýrdal 1899, var ókvænt hjú 1901-1902 á Bólstað í Mýrdal hjá Jóni Gunnsteinssyni og Þorgerði Hjálmarsdóttur, í Gröf í Skaftártungu frá 1902, í Þykkvabæ í Landbroti 1907-1908, í Presthúsum í Mýrdal 1908-1910, á Felli þar 1910-1913.
Bjarni Jóhannes var tómthúsmaður í Vík í Mýrdal 1913 til dd.
Hann lést 1960.
Kona Bjarna Jóhannesar, (9. nóvember 1907), var Sigurveig Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 29. september 1862, d. 24. september 1946.
Þau voru barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.