„Steinunn Sigurðardóttir (Þingeyri)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Steinunn Sigurðardóttir (Þingeyri)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 21: | Lína 21: | ||
*[[Óskar Pétur Friðriksson]]. | *[[Óskar Pétur Friðriksson]]. | ||
*Pers.}} | *Pers.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | ||
[[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]] | [[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]] |
Útgáfa síðunnar 15. ágúst 2015 kl. 20:55
Steinunn Sigurðardóttir húsfreyja á Þingeyri fæddist í Búðarhóls-Austurhjáleigu í A-Landeyjum 20. júní 1867 og lézt í Vesturheimi 9. nóvember 1966.
Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Pétursdóttir og Sigurður Sigurðsson þá bóndahjón í Búðarhóls-Austurhjáleigu.
Þau voru einnig foreldrar:
1. Elínar Sigurðardóttur húsfreyju í Ólafshúsum, fyrri konu Jóns Bergs eldri útvegsbónda.
2. Sigurðar Sigurðssonar formanns í Frydendal, sambýlismanns Önnu Sigríðar Árnadóttur móður Johnsensbræðra.
3. Sigríðar Sigurðardóttur húsfreyju í Lambhaga, konu Guðmundar Guðmundssonar sjómanns í Lambhaga.
4. Vigfúsar fóstra Þorsteins Þ. Víglundssonar.
I. Steinunn var búandi í Oddakoti í A-Landeyjum 1892-1894 með fyrri manni sínum Magnúsi Jónssyni til 1893, en Magnús drukknaði við Eyjar 25. marz 1893 og bjó Steinunn ekkja í Oddakoti næsta árið.
Hún var vinnukona í Litlu-Hildisey í A-Landeyjum 1894-1897, húskona á Ljótarstöðum þar 1897-1899. Þá flutti hún til Eyja.
II. Síðari maður hennar var Jón Jónsson sjómaður.
Þau Jón eignuðust eitt barn, Magnús Júlíus sjómann í Eyjum, f. 1. júlí 1905, d. í Vesturheimi 1942.
Hjónin bjuggu í Lambhaga 1920.
Þau byggðu húsið Þingeyri 1921 og bjuggu þar til ársins 1924, er þau seldu húsið Sigurjóni Sigurðssyni og fluttust til Vesturheims.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók - A-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Óskar Pétur Friðriksson.
- Pers.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.