„Ingibjörg Þórðardóttir (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Ingibjörg Þórðardóttir''' vinnukona frá Vilborgarstöðum fæddist 1844 og lést 1. mars 1890.<br> Foreldrar hennar voru [[Þórður Einarsson (Vilborga...) |
m (Verndaði „Ingibjörg Þórðardóttir (Vilborgarstöðum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 9. maí 2014 kl. 11:16
Ingibjörg Þórðardóttir vinnukona frá Vilborgarstöðum fæddist 1844 og lést 1. mars 1890.
Foreldrar hennar voru Þórður Einarsson bóndi og kona hans Ástríður Jónsdóttir húsfreyja.
Ingibjörg var sýstir Guðrúnar Þórðardóttur húsfreyju í Vegg og Gróu Þórðardóttur húsfreyju í Hólshúsi.
Ingibjörg var með foreldrum sínum á Löndum 1850, á Vilborgarstöðum 1855. Hún var með ekkjunni móður sinni og systrum sínum Gróu og Guðrúnu þar 1860.
Hún var vinnukona á Vilborgarstöðum 1870 hjá Jóhönnu Gunnsteinsdóttur og Jóni Jónssyni , síðar búandi í Dölum.
Þá var hún vinnukona í Gvendarhúsi hjá Jóni og Sesselju 1880.
Ingibjörg lést 1890.
Hún var ógift og barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.