„Vigdís Þorbjörnsdóttir (Svaðkoti)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Vigdís Þorbjörnsdóttir (Svaðkoti)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 3. mars 2014 kl. 17:21

Vigdís Þorbjörnsdóttir húsfreyja í Svaðkoti fæddist 9. nóvember 1800 í Holtssókn, Rang. og lést 23. febrúar 1860 í Eyjum.
Faðir hennar var Þorbjörn bóndi í Ásólfsskála þar 1801, f. 1772, Árnason, f. (1725), Þorbjörnssonar.
Móðir Vigdísar og kona Þorbjörns var Vilborg húsfreyja, f. 1771, Tómasdóttir.

Vigdís var vinnukona á Kirkjubæ 3 á Rangárvöllum 1816.
Hún fluttist til Eyja 1817, var ekkja á Ofanleiti (líklega hjáleigunni Svaðkoti) 1835, húsfreyja í Svaðkoti, Vestmannaeyjum 1845-1855.

Vigdís var systir Eyjólfs Þorbjörnssonar bónda og hreppstjóra á Búastöðum vestri og móðursystir Vilborgar Þórðardóttur í Elínarhúsi.

Vigdís var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (1820), var Jón Þorkelsson bóndi í Svaðkoti, f. í nóvember 1795 í Danska Garði, d. 5. mars 1834, drukknaði.

Börn Vigdísar og Jóns hér:
1. Sveinn Jónsson, f. 16. júní 1821, d. 22. júní 1821.
2. Jón Jónsson, f. 4. september 1822, d. 13. september 1822.
3. Vilborg Jónsdóttir, f. 27. október 1823, d. 29. október 1878 á Vilborgarstöðum..
4. Þorbjörn Jónsson, f. 11. desember 1824, d. 19. desember 1824.
5. Guðríður Jónsdóttir húsfreyja á Búastöðum, f. 6. ágúst 1829, d. 15. ágúst 1867, kona Sigurðar Torfasonar hreppstjóra.
6. Geirdís Jónsdóttir, f. 1. ágúst 1832, d. 7. ágúst 1832.
7. Þuríður Jónsdóttir, f. 29. apríl 1834, d. 6. maí 1834.

II. Síðari maður Vigdísar, (7. nóvember 1835), var Árni Eiríksson bóndi og sjómaður frá Fossi í Mýrdal, f. 10. maí 1798, d. 20. október 1873.


Heimildir