Guðríður Jónsdóttir (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðríður Jónsdóttir húsfreyja á Búastöðum, fæddist 6. ágúst 1829 og lést 15. ágúst 1867.
Foreldrar Guðríðar voru Vigdís Þorbjörnsdóttir húsfreyja í Svaðkoti, f. 9. nóvember 1800, d. 23. febrúar 1860 og fyrri maður hennar Jón Þorkelsson bóndi f. í nóvember 1795 í Danska Garði, d. 5. mars 1834, drukknaði.

Guðríður var 11 ára með móður sinni og stjúpa í Svaðkoti 1840, 17 ára þar 1845, 21 árs þar 1850, 31 árs húsfreyja á Búastöðum 1860.
Hún dó tveim dögum eftir barnsburð.

Maður Guðríðar var Sigurður Torfason hreppstjóri á Búastöðum, f. 14. febrúar 1822, d. 18. apríl 1870.
Börn Sigurðar og Guðríðar voru:
1. Jón Sigurðsson, f. 25. febrúar 1851, d. 11. mars 1851 „af Barnaveikin ginklofa“.
2. Guðrún Sigurðardóttir vinnukona, f. 18. september 1852, d. 21. mars 1939.
3. Hjálmar Sigurðsson, f. 17. ágúst 1853, d. 30. október 1853 „af barnaveiki“.
4. Jón Sigurðsson, f. 22. ágúst 1854, d. 16. nóvember 1854, „dó hastarlega án þess að merki væru um nokkurn sjúkleika“.
5. Einar Sigurðsson skipstjóri, f. 25. febrúar 1856, drukknaði 31. mars 1889.
6. Tómas Sigurðsson, f. 24. mars 1857, d. 5. apríl 1857 úr ginklofa.
7. Sigríður Sigurðardóttir, f. 24. júní 1859, d. 25. janúar 1940.
8. Vilborg Sigurðardóttir, f. 9. júní 1858, d. 20. júní 1858 úr ginklofa.
9. Vilhjálmur Sigurðsson, f. 14. ágúst 1860, d. 2. febrúar 1861 af bólguígerð.
10. Torfi Sigurðsson verkamaður í Norðurbæ á Eyrarbakka 1930, f. 11. nóvember 1861, d. 19. september 1950.
11. Bjarni Sigurðsson, f. 5. ágúst 1863, d. 10. desember 1863 úr „uppdráttarsýki‟.
12. Gróa Björg Sigurðardóttir vinnukona, f. 26. maí 1865, d. 12 júlí 1882.
13. Guðríður Sigurðardóttir vinnukona, f. 13. ágúst 1867, d. 1918,


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.