„Elliðaey“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 40: | Lína 40: | ||
}} | }} | ||
== Ellirey - Gengið við á gömlum og nýjum lundaveiðistöðum == | == Ellirey - Gengið við á gömlum og nýjum lundaveiðistöðum == | ||
Skráð af Pétri Guðjónssyni frá Oddsstöðum og síðar Kirkjubæ | Skráð af Pétri Guðjónssyni frá Oddsstöðum og síðar Kirkjubæ. | ||
Okkur Þórarni Sigurðssyni rafvirkjameistara, með meiru, kom saman um það, að gaman væri að fara dagstund út í Ellirey, ganga um eyna og færa inn á blað hina ýmsu lundaveiðistaði, bæði gamla og nýja. Svo kom að því, að ákveðið var að fara skyldi einn laugardag eftir hádegi,enda var veðrið mjög gott, norðangola og ládauður sjór. | |||
Farið var með m/b Lat, VE 10 skipstjóri að sjálfsögðu Sigurður Sigurðsson ( Diddi frá Svanhóli), eigandi bátsins og formaður Ellireyjafélagsins. | |||
Þegar komið var út fyrir hafnargarða, var haldið laust sunnan við Ellireyjartanga, sem er syðsti oddi á eynni. Þegar komið er fyrir tangana, er haldið í norður, austan við Suður-og Norður-Búr vegna þess, að norðan við Búrið er stór blindflúð, sem er að vísu upp úr á fjöru, en sést ekki á flóði nema í brimi. Þessi flúð er hið eina, sem forðast þarf, | |||
[[Flokkur:Eyjur]] | [[Flokkur:Eyjur]] | ||
[[Flokkur:Elliðaey]] | [[Flokkur:Elliðaey]] | ||
[[Flokkur:Þjóðsögur]] | [[Flokkur:Þjóðsögur]] |
Útgáfa síðunnar 24. nóvember 2005 kl. 14:14
Elliðaey er þriðja stærsta eyja Vestmannaeyja, (stundum nefnd Ellirey), og er 0,45 km² að flatarmáli. Eyjan er víðast sæbrött, lægri að austanverðu þar sem greitt er uppgöngu um Austurflá þar sem reipi hefur verið komið fyrir. Elliðaey er mjög grösug og þar var heyjað fyrrum og einnig hagaganga fyrir sauðfé og jafnvel nautgripi. Gífurlega mikið varp er þar og fuglatekja. Eyjan er hæst að norðan, það er Hábarð (114 metrar yfir sjávarmáli). Á eyjunni eru tveir gjallgígar, Litli Bunki og Stóri Bunki. Talið er að eyjan hafi myndast í eldgosi sem hefur verið töluvert stærra en Surtseyjargosið, fyrir um 5-6 þúsund árum.
Graslendi þekur alla eyjuna og hefur gríðarlegur fjöldi lunda grafið sér holur þar. Í eyjunni er sauðfé beitt og lundaveiði er stunduð á sumrin.
Deildar meiningar eru um nafn eyjunnar en Elliðaeyjarnafnið dregur hún sennilega af skipi því að hún er lík stafnháu skipi. En sumir segja að nafnið Ellirey sé vegna þess að eyjan taki nafn sitt af tveimur hellum H-ellirey, en önnur eyja í Vestmannaeyjum dregur nafn sitt af hellum, Hellisey.
Í bókinni Örnefni í Vestmannaeyjum segir að Elliðaey sé „[...] í tilliti til stærðar og frjósemi Heimaeyjunni næst. Hún liggur frá N. til S. og er breiðust að norðan, en mjóst að sunnan. Að vestan og norðan er eyjan afar há, og eru hamrarnir næstum þverhníptir. Þó eru hillur og bekkir hér og hvar í þeim, á hverjum rilla og svartfugl verpa.“ Mynd:Elliðaey-kort.PNG
Austan til í eyjunni er hún mjög lág, og þar er uppganga í lítilli vík, sem kölluð er Höfnin.
Elliðaey er á náttúruminjaskrá því þar eru mjög miklar og sérstæðar sjófuglabyggðir. Í Elliðaey er að finna helstu varpbyggðir storm- og sjósvölu á Íslandi, sem telja tugþúsundir para. Fýll og langvía verpa mikið í Elliðaey, auk lunda.
Á eyjunni er stórt veiðihús í eigu Elliðaeyjarfélagsins, sem stundar þar Lundaveiði á sumrin og eggjatöku á vorin. Í gamla daga var veiðihúsið kallað "ból". Fyrsta bólið sem reist var í eynni stendur enn. Er það notað sem geymsla og stendur vestan við "Skápana". Árið 1953 var nýtt ból reist við rætur Hábarðs því gamla húsið stóðst ekki tímans tönn. 1985 var hafist handa við að byggja nýtt veiðihús á tveimur hæðum sem var áfast húsinu sem byggt var 1953. Lokið var við þá byggingu 1987. 1994 kom í ljós að bólið frá 1953 var orðið það illa farið að ekki var hægt að nota það lengur. Var það þvi rifið og annað hús reist í staðinn á sama stað, lauk þeirri byggingu 1996. Á árunum 2000-2001 var reist lítið hús vestan við bólið sem hýsir gufubað Elliðaeyjafélagsins.
Höskuldur í Elliðaey
Ýmsar sögur eru til úr Elliðaey en ein þeirra hljóðar á þessa leið:
- Einhvern tíma fyrir löngu var margt fólk við slátt í Elliðaey. Þar á meðal var vinnukona sem hét Guðrún Höskuldsdóttir. Á almæli var að þessi kona var ekki ein saman og hún hafði orðið léttari í Elliðaey um sláttinn. Hún bar barnið út og faldi það í helli einum í lundabyggðinni skammt austur af Nautaréttinni. Þessi útburður var nefndur Höskuldur eftir föður móðurinnar og hellirinn síðan Höskuldarhellir því að útburðurinn hafðist þar við.
- Þessi útburður gerði lundamönnum og sláttumönnum ónæði með væli sínu á nóttum, einkum þó þegar gekk á með illviðri. Þá heyrðist útburðarvælið frá hellinum langt að.
- Sögn Gísla Lárussonar í Stakkagerði
Jarðeignir
Áður fyrr var eyjunum skipt upp milli jarða á Heimaey. Elliðaey gat borið 256 sauði, eða sextán kindur per jörð, þar sem sextán jarðir höfðu aðgang að Elliðaey.
- Kornhóll (Garðurinn)
- Miðhús
- Gjábakki (2 býli)
- Presthús (2 býli)
- Oddstaðir (2 býli)
- Búastaðir (2 býli)
- Stóragerði
- Norðurgarður (2 býli)
- Steinsstaðir
- Þorlaugargerði (2 býli)
Heimildir
- Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum.
- Aðalskipulag Vestmannaeyja, 2004-2014, 4. tillaga (22/10/2004)
Ellirey - Gengið við á gömlum og nýjum lundaveiðistöðum
Skráð af Pétri Guðjónssyni frá Oddsstöðum og síðar Kirkjubæ.
Okkur Þórarni Sigurðssyni rafvirkjameistara, með meiru, kom saman um það, að gaman væri að fara dagstund út í Ellirey, ganga um eyna og færa inn á blað hina ýmsu lundaveiðistaði, bæði gamla og nýja. Svo kom að því, að ákveðið var að fara skyldi einn laugardag eftir hádegi,enda var veðrið mjög gott, norðangola og ládauður sjór. Farið var með m/b Lat, VE 10 skipstjóri að sjálfsögðu Sigurður Sigurðsson ( Diddi frá Svanhóli), eigandi bátsins og formaður Ellireyjafélagsins. Þegar komið var út fyrir hafnargarða, var haldið laust sunnan við Ellireyjartanga, sem er syðsti oddi á eynni. Þegar komið er fyrir tangana, er haldið í norður, austan við Suður-og Norður-Búr vegna þess, að norðan við Búrið er stór blindflúð, sem er að vísu upp úr á fjöru, en sést ekki á flóði nema í brimi. Þessi flúð er hið eina, sem forðast þarf,