„Pétur Halldórsson (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Pétur Halldórsson''' sjávarbóndi á Vilborgarstöðum fæddist 1823 og lést 5. febrúar 1870.
Móðir hans var [[Vilborg Pétursdóttir (Löndum)|Vil...) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 10: | Lína 10: | ||
Börn Péturs og Margrétar hér:
| Börn Péturs og Margrétar hér:

1. Hreinn Pétursson, f. 1. janúar 1851.
| 1. Hreinn Pétursson, f. 1. janúar 1851.

2. [[Fídes Pétursdóttir|Fídes Pétursdóttir]], f. 1851. Hún fór til Seyðisfjarðar 1886 og var vinnuhjú í Neshjáleigu í Loðmundarfirði 1890, d. 6. október 1894.
| 2. [[Fídes Pétursdóttir (Vilborgarstöðum)|Fídes Pétursdóttir]], f. 1851. Hún fór til Seyðisfjarðar 1886 og var vinnuhjú í Neshjáleigu í Loðmundarfirði 1890, d. 6. október 1894.

3. [[Árni Pétursson (Vilborgarstöðum)|Árni]] vinnumaður í [[Jómsborg]], f. 1854, d. 3. júlí 1879.
| 3. [[Árni Pétursson (Vilborgarstöðum)|Árni]] vinnumaður í [[Jómsborg]], f. 1854, d. 3. júlí 1879.

4. Ingibjörg Pétursdóttir, f. 23. september 1856, d. 2. október 1856.
| 4. Ingibjörg Pétursdóttir, f. 23. september 1856, d. 2. október 1856.

Útgáfa síðunnar 26. október 2013 kl. 21:33
Pétur Halldórsson sjávarbóndi á Vilborgarstöðum fæddist 1823 og lést 5. febrúar 1870.
Móðir hans var Vilborg Pétursdóttir, síðar húsfreyja á Löndum, skírð 1. desember 1792 í Stóru-Hildisey í A-Landeyjum, d. 30. mars 1859, Pétursdóttir.
Faðir Péturs var skráður Erlendur Sigurðsson í prestþjónustubók, en Pétur var skráður Halldórsson strax á fyrsta ári. Föðurætt hans er ókunn.
Pétur kom til Eyja 1824, eins árs, með Vilborgu móður sinni. Þau fluttust að Dölum. Hann var skráður fyrirvinna hjá Ingibjörgu Erasmusdóttur á Kirkjubæ 1850. Þar var Margrét dóttir hennar. Hann var sjávarbóndi á Vilborgarstöðum 1855 með fjölskyldu sinni, Margréti konu sinni, börnunum Fídes 4 ára og Árna eins árs, Ingibjörgu Erasmusdóttur tengdamóður sinni og barni Margrétar, Kristínu Jónsdóttur 12 ára.
Hann var í Herfylkingunni 1859.
Kona Péturs var Margrét Jónsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 4. júlí 1824, d. 24. mars 1868. Hún var dóttir Ingibjargar Erasmusdóttur á Kirkjubæ og Jóns Arnessonar, þá vinnumanns í Fljótshlíð, en síðar tómthúsmanns í Ömpuhjalli.
Börn Péturs og Margrétar hér:
1. Hreinn Pétursson, f. 1. janúar 1851.
2. Fídes Pétursdóttir, f. 1851. Hún fór til Seyðisfjarðar 1886 og var vinnuhjú í Neshjáleigu í Loðmundarfirði 1890, d. 6. október 1894.
3. Árni vinnumaður í Jómsborg, f. 1854, d. 3. júlí 1879.
4. Ingibjörg Pétursdóttir, f. 23. september 1856, d. 2. október 1856.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.