Fídes Pétursdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Fídes Pétursdóttir vinnukona fæddist 21. nóvember 1851 í Eyjum og lést 6. október 1894.
Foreldrar hennar voru Pétur Halldórsson sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 1823, d. 5. febrúar 1870, og kona hans Margrét Jónsdóttir húsfreyja, f. 4. júlí 1824, d. 24. mars 1868.
Fídes var með foreldrum sínum á Vilborgarstöðum 1860, vinnukona í Draumbæ 1870 og 1880. Hún fór til Seyðisfjarðar frá Draumbæ 1886 og var vinnuhjú í Neshjáleigu í Loðmundarfirði 1890, fór aftur frá Seyðisfirði til Norðfjarðar með Ingunni Katrínu 1894.
Hún lést 1894.

Barnsfaðir hennar var Arnfinnur Jónsson, fæddur 21. júlí 1862, fór til Vesturheims 1887, látinn í Kanada 13. júní 1899.
Barn þeirra var
1. Ingunn Katrín Arnfinnsdóttir húsfreyja, f. 25. mars 1888, d. 17. júlí 1958.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Arnes – síðasti útilegumaðurinn. Kristinn Helgason. Fjölvaútgáfa 1997.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.