„Bjarni Ólafsson (Svaðkoti)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
m (Bjarni Ólafsson færð á Bjarni Ólafsson (Svaðkoti)) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 29. maí 2013 kl. 17:06
Bjarni Ólafsson var bóndi og formaður í Svaðkoti. Hann var fæddur að Steinmóðarbæ undir Eyjafjöllum 22. janúar 1836. Kona Bjarna var Ragnheiður Gísladóttir ættuð úr Fljótshlíð. Sagt var að þau hjón hefðu verið ákaflega samhent og dugmikil í búskapnum.
Bjarni fórst af bát sínum 16. júní 1883. Veður var gott og sjór sléttur en talið var að illhveli hefði grandað bátnum.
Meðal barna Ragnheiðar og Bjarna var Guðríður í Brautarholti, kona Jóns Jónssonar frá Dölum.
Heimildir
- Þorsteinn Þ. Víglundsson. Blik, ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Maí 1961.