„Smáeyjar“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
(Texti eftir Gísla Lárusson)
Lína 12: Lína 12:


[[Mynd:Smáeyjar.JPG|thumb|300px|Smáeyjar, séðar frá Norðurgarði.]]
[[Mynd:Smáeyjar.JPG|thumb|300px|Smáeyjar, séðar frá Norðurgarði.]]
==Úr örnefnaskrá [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussonar]]==
X. '''Smáeyjar'''  eru einu nafni nefndar 4 eyjar, er liggja ca ¼ mílu vestur af [[Dalfjall|Dalfjalli]], er '''[[Hæna]]'''  syðst, og er austan í henni hellir stór, er róa má inn í; nefndur '''[[Kafhellir]]''' . Vestan við Hænu er skerjaklasi, '''Smáeyjasker'''  og sunnan við þau hár, en örmjór drangur, '''Jötunn''' . Þá er '''[[Hani]]'''  næstur, er efst á honum smáhamar, nefndur '''Hanahöfuð''' ; þá er næst '''[[Hrauney]]''' ; eru eggtindar á henni, en þúfumyndanir á Hænu og Hana. Er í eyjum þessum öllum gróður og vetrarbeit fyrir lömb, nema í Hænu, af því sjór gengur yfir hana á vetrum.
{{Heimildir|
* [[Gísli Lárusson]]. 1914 '''Örnefni á Vestmannaeyjum'''. [http://www.ornefni.is Örnefnastofnun Íslands]
}}

Útgáfa síðunnar 25. nóvember 2005 kl. 19:58

Mynd:Smáeyjar kort.PNG Smáeyjar eru fjórar litlar eyjar ásamt fjölda smáskerja. Eyjarnar liggja rétt vestur af Stafsnesi og er Hani stærst.

Hæna liggur syðst af þeim og er hún 57 m há. Þar urðu miklar gróðurskemmdir 1990 þegar brimaði yfir eyjuna í stormi. Flestir lundar í eyjunni urðu þar með heimilislausir og var allri veiði hætt í kjölfarið.

Norður af Hænu liggur Hani. Á Hana er áberandi hóll er nefnist Hanahöfuð og ber hæst um 87 m. Graslendi þekur eyjuna að mestu.

Næst í röðinni er Hrauney. Ofan á eyjunni eru áberandi grýttir hamrar sem stingast úr graslendinu. Bæði í Hrauney og í Hana eru veiðikofar og dálítil lundatekja auk þess sem fé er haft á beit.

Grasleysa liggur vestan Hrauneyjar, hún er álíka há og Hæna. Á eyjunni sést ekki stingandi strá eins og nafnið gefur til kynna.

Smáeyjar, séðar frá Norðurgarði.

Úr örnefnaskrá Gísla Lárussonar

X. Smáeyjar eru einu nafni nefndar 4 eyjar, er liggja ca ¼ mílu vestur af Dalfjalli, er Hæna syðst, og er austan í henni hellir stór, er róa má inn í; nefndur Kafhellir . Vestan við Hænu er skerjaklasi, Smáeyjasker og sunnan við þau hár, en örmjór drangur, Jötunn . Þá er Hani næstur, er efst á honum smáhamar, nefndur Hanahöfuð ; þá er næst Hrauney ; eru eggtindar á henni, en þúfumyndanir á Hænu og Hana. Er í eyjum þessum öllum gróður og vetrarbeit fyrir lömb, nema í Hænu, af því sjór gengur yfir hana á vetrum.



Heimildir