„Smáeyjar“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
{{Eyjur}}
{{Eyjur}}
[[Mynd:Smáeyjar kort.PNG|thumb|left|Gamalt kort af Smáeyjum]]
[[Mynd:Smáeyjar kort.PNG|thumb|left|Gamalt kort af Smáeyjum.]]
'''Smáeyjar''' eru fjórar litlar eyjar ásamt fjölda smáskerja. Eyjarnar liggja rétt vestur af [[Stafsnes|Stafsnesi]] og er [[Hani]] stærst.  
'''Smáeyjar''' eru fjórar litlar eyjar ásamt fjölda smáskerja. Eyjarnar liggja rétt vestur af [[Stafsnes|Stafsnesi]] og er [[Hani]] stærst.  


Lína 11: Lína 11:
[[Grasleysa]] liggur vestan Hrauneyjar, hún er álíka há og Hæna. Á eyjunni sést ekki stingandi strá eins og nafnið gefur til kynna.
[[Grasleysa]] liggur vestan Hrauneyjar, hún er álíka há og Hæna. Á eyjunni sést ekki stingandi strá eins og nafnið gefur til kynna.


[[Mynd:Smáeyjar.JPG|thumb|300px|Smáeyjar, séðar frá Norðurgarði]]
[[Mynd:Smáeyjar.JPG|thumb|300px|Smáeyjar, séðar frá Norðurgarði.]]

Útgáfa síðunnar 1. júlí 2005 kl. 10:46

Mynd:Smáeyjar kort.PNG Smáeyjar eru fjórar litlar eyjar ásamt fjölda smáskerja. Eyjarnar liggja rétt vestur af Stafsnesi og er Hani stærst.

Hæna liggur syðst af þeim og er hún 57 m há. Þar urðu miklar gróðurskemmdir 1990 þegar brimaði yfir eyjuna í stormi. Flestir lundar í eyjunni urðu þar með heimilislausir og var allri veiði hætt í kjölfarið.

Norður af Hænu liggur Hani. Á Hana er áberandi hóll er nefnist Hanahöfuð og ber hæst um 87 m. Graslendi þekur eyjuna að mestu.

Næst í röðinni er Hrauney. Ofan á eyjunni eru áberandi grýttir hamarar sem stingast úr graslendinu. Bæði í Hrauney og í Hana eru veiðikofar og dálítil lundatekja auk þess sem fé er haft á beit.

Grasleysa liggur vestan Hrauneyjar, hún er álíka há og Hæna. Á eyjunni sést ekki stingandi strá eins og nafnið gefur til kynna.

Smáeyjar, séðar frá Norðurgarði.