„Guðrún Kristín Ingvarsdóttir“: Munur á milli breytinga
mEkkert breytingarágrip |
mEkkert breytingarágrip |
||
Lína 13: | Lína 13: | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
*''Upphaflega grein skrifaði [[Víglundur Þór Þorsteinsson]] | *''Upphaflega grein skrifaði [[Víglundur Þór Þorsteinsson]] | ||
*Minningargrein. | |||
*Pers. | *Pers. | ||
*''Rangvellingabók.'' | *''Rangvellingabók.''}} | ||
[[Flokkur:Fólk]] | [[Flokkur:Fólk]] |
Útgáfa síðunnar 19. desember 2006 kl. 17:29
Guðrún Kristín Ingvarsdóttir húsmóðir í Hlaðbæ og Skuld, síðast í Hraunbúðum, fæddist 5. marz 1907 og lézt 26. marz 2005.
Ætt og uppruni
Foreldrar Guðrúnar voru Ingvar bóndi í Koti á Rangárvöllum 1893-95, en steinsmiður í Reykjavík frá 1898, f. 5. febrúar 1963 á Vestri-Torfastöðum í Fljótshlíð, d. 30. nóvember 1915, Sveins bónda þar, f. 4. júlí 1833, d. 15. sept. 1891, Árnasonar og konu Sveins bónda, Ingibjargar húsfreyju, f. 6. des. 1829, d. 1. marz 1898, Gísla bónda á Brekkum á Rangárvöllum, Árnasonar.
Móðir Guðrúnar og kona Ingvars bónda og steinsmiðs var (18. okt. 1893) Guðrún húsfreyja, f. 18. júní 1873, d. 21. júní 1959, Jóns bónda á Þorleifsstöðum á Rangárvöllum, f. 19. okt 1822 á Kotmúla í Fljótshlíð, d. 16. des. 1899, Þorvarðarsonar og konu Jóns á Þorleifsstöðum, Ingibjargar húsfreyju, f. 8. ágúst 1833, d. 7. marz 1893, Böðvarsdóttur bónda á Reyðarvatni.
Guðrún Kristín var alsystir Böðvars í Ásum, f. 1893.
Lífsferill
Guðrún Kristín ólst upp við Grettisgötuna og Bergstaðastræti í Reykjavík. Hún flutti tvítug til Eyja. Hún rak stórt heimili og þegar Jónas maður hennar var skipstjóri þjónaði hún aðkomnum sjómönnum hans með fæði og fatnað. Hún starfaði að auki við síldarsöltun og aðra fiskvinnu og vann við þrif í Gagnfræðaskólanum. Síðustu árin dvaldi hún að Hraunbúðum í Eyjum.
Í janúarmánuði 1928 kvæntist Guðrún Jónasi Sigurðssyni frá Skuld og eignuðust þau fimm börn, Ingunni, Guðrúnu, Sjöfn, Sigurgeir og Sigurjón Ingvars. Auk þess ólu þau upp dótturson, son Guðrúnar, Jónas Þór Steinarsson.
Heimildir
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson
- Minningargrein.
- Pers.
- Rangvellingabók.