„Jóhanna Njálsdóttir Andersen“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Jóhanna Njálsdóttir Andersen''' húsfreyja, kennari fæddist 27. apríl 1953 að Hásteinsvegi 29.<br> Foreldrar hennar voru Njáll Andersen vélvirkjameistari, verkstjóri, f. 24. júní 1914 í Landlyst, d. 27. október 1999, og kona hans Halldóra Úlfarsdóttir frá Vattarnesi við Reyðarfjörð, húsfreyja, f. 2. október 1918, d. 20. ágúst 2000. Börn Halldóru og Njáls:<br> 1. María Njálsdóttir And...)
 
m (Verndaði „Jóhanna Njálsdóttir Andersen“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 2. júní 2023 kl. 12:57

Jóhanna Njálsdóttir Andersen húsfreyja, kennari fæddist 27. apríl 1953 að Hásteinsvegi 29.
Foreldrar hennar voru Njáll Andersen vélvirkjameistari, verkstjóri, f. 24. júní 1914 í Landlyst, d. 27. október 1999, og kona hans Halldóra Úlfarsdóttir frá Vattarnesi við Reyðarfjörð, húsfreyja, f. 2. október 1918, d. 20. ágúst 2000.

Börn Halldóru og Njáls:
1. María Jóhanna Njálsdóttir Andersen húsfreyja, kaupmaður, skólaliði, f. 11. febrúar 1940 á Sólbakka. Maður hennar var Kolbeinn Ólafsson.
2. Úlfar Njálsson Andersen vélvirki, f. 10.janúar 1943 á Hásteinsvegi 29. Fyrri kona hans var Guðfinna ‚‘‘‘‘‘Ásta Kristinsdóttir. Síðari kona Úlfars er Halla Hafsteinsdóttir.
3. Harpa Njálsdóttir Andersen húsfreyja, félagsliði, f. 10. ágúst 1948 á Hásteinsvegi 29. Fyrri maður hennar var Ólafur Óskarsson, látinn. Síðari maður Hörpu er Atli Sigurðsson.
4. Jóhanna Njálsdóttir Andersen húsfreyja, kennari, f. 27. apríl 1953 að Hásteinsvegi 29. Maður hennar er Ragnar Óskarsson
5. Pétur Njálsson Andersen vélvirki, f. 1. janúar 1955 að Hásteinsvegi 29. Kona hans Andrea Berghildur Gunnarsdóttir.
6. Theodór Friðrik Njálsson Andersen viðskiptafræðingur, bankastarfsmaður í Finnlandi, f. 3. mars 1960 að Hásteinsvegi 29. Kona hans er Siv Schalin.

Jóhanna var með foreldrum sínum.
Hún varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1970, lauk stúdentsprófi í Framhaldsskólanum í Eyjum 1989, lauk prófum í Kennaraháskóla Íslands í fjarnámi 1996, lauk námi skólabókasafnsfræði í Kaupmannahöfn 1997.
Jóhanna var kennari í grunnskólum Vestmannaeyja 1989-2018.
Þau Ragnar giftu sig 1971, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Hrauntúni 22.

I. Maður Jóhönnu, (3. júlí 1971), er Ragnar Óskarsson kennari, f. 17. janúar 1948.
Börn þeirra:
1. Óskar Ragnarsson læknir, með doktorspróf í innkirtlafræði, býr í Gautaborg, f. 18. janúar 1972. Kona hans Rebekka Atladóttir og Rutar Óskarsdóttur.
2. Guðbjörg Vallý Ragnarsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 27. maí 1978. Barnsfaðir hennar Ómar Örn Magnússon Guðmundssonar. Barnsfaðir hennar Þorvaldur Guðmundsson.
3. Njáll Ragnarsson stjórnmálafræðingur, sérfræðingur á Fiskistofu, f. 27. febrúar 1984. Kona hans Matthildur Halldórsdóttir og Lindu Sigurlásdóttur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.