„Bergsteinn Theodór Þórarinsson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: thumb|256x256dp|''Bergsteinn Theódór Þórarinsson. '''Bergsteinn Theódór Þórarinsson (Kúti)''' sjómaður fæddist 1. nóvember 1933 í Hólmgarði og lést 12. ágúst 1991.<br> Foreldrar hans voru Þórarinn Magnússon Sigurður Thorlacius Magnússon frá Langa-Hvammi, sjómaður, f. 27. nóvember 1906, fórst í sjó 29. janúar 1940,...) |
m (Verndaði „Bergsteinn Theodór Þórarinsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 8. ágúst 2022 kl. 17:45
Bergsteinn Theódór Þórarinsson (Kúti) sjómaður fæddist 1. nóvember 1933 í Hólmgarði og lést 12. ágúst 1991.
Foreldrar hans voru Þórarinn Magnússon Sigurður Thorlacius Magnússon frá Langa-Hvammi, sjómaður, f. 27. nóvember 1906, fórst í sjó 29. janúar 1940, og kona hans Anna Halldórsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 28. október 1906 á Bryggju í Biskupstungum, d. 29. desember 1992.
Systir Bergsteins Theódórs var
1. Guðrún Ársæl Þórarinsdóttir, f. 15. janúar 1932 á Litlu-Grund, d. 15. febrúar 2021.
Bergsteinn Theódór (Kúti) var með foreldrum sínum á Stapa, en faðir hans fórst í sjó, er Kúti var á sjöunda árinu.
Hann var með móður sinni, varð sjómaður.
Bergsteinn Theódór slasaðist illa á togveiðum, missti handlegg. Hann eignaðist trillu undir það síðasta, sem hann nefndi eftir vini sínum, Sævari í Gröf.
Hann var ókvæntur, bjó síðast hjá móður sinni á Kanastöðum við Hásteinsveg 22.
Hann lést 1991.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Prestþjónustubækur.
- Sjómannadagsblað Vestmannaeyja.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.