„Guðrún Kristín Guðjónsdóttir“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Guðrún Kristín Guðjónsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Guðrún Kristín Guðjónsdóttir.jpg|thumb|200px|''Guðrún Kristín Guðjónsdóttir.]] | |||
'''Guðrún Kristín Guðjónsdóttir''' frá [[Gvendarhús]]i, húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 21. júní 1946 í Gvendarhúsi.<br> | '''Guðrún Kristín Guðjónsdóttir''' frá [[Gvendarhús]]i, húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 21. júní 1946 í Gvendarhúsi.<br> | ||
Foreldrar hennar voru [[Guðjón Guðlaugsson (Gvendarhúsi)|Guðjón Guðlaugsson]] sjómaður, vélstjóri, smiður, bóndi, f. 3. september 1901 í Mundakoti á Eyrarbakka, d. 18. janúar 1958, og síðari kona hans [[Margrét Hróbjartsdóttir (Gvendarhúsi)|Margrét Hróbjartsdóttir]], húsfreyja, f. 15. september 1910 á Kúfhóli í A-Landeyjum, d. 30. september 2002. | Foreldrar hennar voru [[Guðjón Guðlaugsson (Gvendarhúsi)|Guðjón Guðlaugsson]] sjómaður, vélstjóri, smiður, bóndi, f. 3. september 1901 í Mundakoti á Eyrarbakka, d. 18. janúar 1958, og síðari kona hans [[Margrét Hróbjartsdóttir (Gvendarhúsi)|Margrét Hróbjartsdóttir]], húsfreyja, f. 15. september 1910 á Kúfhóli í A-Landeyjum, d. 30. september 2002. |
Útgáfa síðunnar 18. október 2019 kl. 16:28
Guðrún Kristín Guðjónsdóttir frá Gvendarhúsi, húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 21. júní 1946 í Gvendarhúsi.
Foreldrar hennar voru Guðjón Guðlaugsson sjómaður, vélstjóri, smiður, bóndi, f. 3. september 1901 í Mundakoti á Eyrarbakka, d. 18. janúar 1958, og síðari kona hans Margrét Hróbjartsdóttir, húsfreyja, f. 15. september 1910 á Kúfhóli í A-Landeyjum, d. 30. september 2002.
Börn Margrétar og Guðjóns:
1. Theódór Guðjónsson kennari við Hlíðardalsskóla í Ölfusi, síðan skólastjóri barna- og unglingaskólans á Stokkseyri, f. 5. apríl 1931 í Dalbæ.
2. Þuríður Selma Guðjónsdóttir hjúkrunarforstjóri Sjúkrahússins í Eyjum, f. 6. júlí 1933 í Háagarði.
3. Guðrún Kristín Guðjónsdóttir húsfreyja og skrifstofumaður, f. 21. júní 1946 í Gvendarhúsi.
4. Hallfríður Erla Guðjónsdóttir skólastjóri á Álftanesi, f. 24. maí 1952.
Guðrún er fjórða bekkjar gagnfræðingur frá Gagnfræðaskólanum 1963.
Hún vann í Apótekinu og á Sjúkrahúsinu, en síðan hjá sýslumanni.
Þau Páll giftu sig 1969, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu á Brimhólabraut 31 fram að Gosi, en síðan á Dverghamri 7.
I. Maður Guðrúnar, (6. apríl 1969), er Páll Pálmason knattspyrnukappi, stýrimaður, verkstjóri, f. 11. ágúst 1945 á Skjaldbreið.
Börn þeirra:
1. Hörður Pálsson bifvélavirki, f. 25. febrúar 1966. Kona hans er Kolbrún Matthíasdóttir.
2. Grétar Víðir Pálsson rafmagns- og tölvuverkfræðingur í Reykjavík, f. 15. september 1975. Kona hans er Lilja Logadóttir frá Hellu á Rangárvöllum.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðrún.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.