„Sigrún Sveinsdóttir (Stakkholti)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
m (Verndaði „Sigrún Sveinsdóttir (Stakkholti)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 7. mars 2018 kl. 18:40
Sigrún Sveinsdóttir húsfreyja á Efra-Hvoli og Garðsaukahjáleigu í Hvolhreppi fæddist 16. október 1864 og lést 27. október 1931.
Foreldrar hennar voru Sveinn Jakobsson bóndi í Dalskoti u. V-Eyjafjöllum, f. 23. ágúst 1831, drukknaði 5. apríl 1881, og kona hans Guðrún Ögmundsdóttir húsfreyja, f. 1841, d. 25. október 1903.
Sigrún var með foreldrum sínum í Dalskoti 1870 og 1880.
Hún var vinnukona í Miðhúsum í Hvolhreppi 1890 og þar var Páll Árnason vinnumaður. Þau giftu sig 1894, bjuggu á Efra-Hvoli í Hvolhreppi 1901 með sonunum Gústavi og Sveini.
Þau bjuggu í Garðsaukahjáleigu þar 1910 með fimm börnum sínum.
Páll lést 1915. Sigrún bjó ekkja með fjórum börnum sínum í Garðsaukahjáleigu 1920, en brá búi og fluttist með Sveini syni sínum til Eyja 1921 og fylgdi honum þar.
Hún lést 1931.
I. Maður Sigrúnar, (1894), var Páll Árnason bóndi, f. 11. mars 1854 að Ártúnum á Rangárvöllum, d. 20. maí 1915.
Börn þeirra hér:
1. Gústav Pálsson sjómaður í Breiðholti, f. 3. febrúar 1889, drukknaði af hlöðnum uppskipunarbát á Víkinni 26. janúar 1923.
2. Sveinn Pálsson verkamaður, f. 2. júní 1896, d. 4. ágúst 1956.
3. Sigríður Kristín Pálsdóttir verkakona, saumakona, f. 3. febrúar 1898, d. 20. mars 1924.
4. Guðrún Pálsdóttir húsfreyja í Stakkholti 1930, síðar á Boðaslóð 1, f. 14. júní 1901, d. 13. desember 1964.
5. Árni Pálsson sjómaður, matsveinn á Auðsstöðum, f. 16. apríl 1903, d. 17. mars 1961.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.