Sveinn Pálsson (Stakkholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sveinn Pálsson verkamaður fæddist 2. júní 1896 að Efra-Hvoli í Hvolhreppi, Rang. og lést 4. ágúst 1956 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Páll Árnason bóndi, f. 11. mars 1854, d. 20. maí 1915, og kona hans Sigrún Sveinsdóttir húsfreyja, f. 16. október 1864, d. 27. október 1931.

Börn Páls og Sigrúnar í Eyjum voru:
1. Gústav Pálsson sjómaður í Breiðholti, f. 3. febrúar 1889, drukknaði af hlöðnum uppskipunarbát á Víkinni 26. janúar 1923.
2. Sveinn Pálsson verkamaður, f. 2. júní 1896, d. 4. ágúst 1956.
3. Sigríður Kristín Pálsdóttir verkakona, saumakona, f. 3. febrúar 1898, d. 20. mars 1924.
4. Guðrún Pálsdóttir húsfreyja í Stakkholti 1930, síðar á Boðaslóð 1, f. 14. júní 1901, d. 13. desember 1964.
4. Árni Pálsson sjómaður, matsveinn á Auðsstöðum, f. 16. apríl 1903, d. 17. mars 1961.

Sveinn var með foreldrum sínum í æsku, á Efra-Hvoli 1901, í Garðsaukahjáleigu 1910 og með ekkjunni móður sinni þar 1920.
Hann fluttist til Eyja ásamt móður sinni 1921 og bjó í Stakkholti og stundaði verkamannastörf.
Guðrún Lilja fluttist frá Akureyri til Eyja 1926 og þau Sveinn giftu sig 1927, eignuðust dóttur á því ári.
Þau bjuggu á Hvanneyri 1934, í Skálanesi 1945 og síðan.
Sveinn lést 1956 og Guðrún Lilja 1959.

I. Kona Sveins, (17. desember 1927), var Guðrún Lilja Sigurðardóttir húsfreyja, f. 23. janúar 1890 á Skúmsstöðum á Eyrarbakka, d. 17. desember 1959.
Barn þeirra:
1. Sigrún Pálína Sveinsdóttir, f. 6. febrúar 1927 í Stakkholti, býr í Bandaríkjunum (1986).
Fósturbarn þeirra 1940 var
2. Áslaug Ólafsdóttir, f. 17. október 1927, síðast í Bandaríkjunum, d. 29. september 2000.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók III – Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.