Sigrún Sveinsdóttir (Stakkholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigrún Sveinsdóttir húsfreyja á Efra-Hvoli og Garðsaukahjáleigu í Hvolhreppi fæddist 16. október 1864 og lést 27. október 1931.
Foreldrar hennar voru Sveinn Jakobsson bóndi í Dalskoti u. V-Eyjafjöllum, f. 23. ágúst 1831, drukknaði 5. apríl 1881, og kona hans Guðrún Ögmundsdóttir húsfreyja, f. 1841, d. 25. október 1903.

Sigrún var með foreldrum sínum í Dalskoti 1870 og 1880.
Hún eignaðist barn með Jóni 1884.
Sigrún var vinnukona í Miðhúsum í Hvolhreppi 1890 og þar var Páll Árnason vinnumaður. Þau giftu sig 1894, bjuggu á Efra-Hvoli í Hvolhreppi 1901 með sonunum Gústavi og Sveini.
Þau bjuggu í Garðsaukahjáleigu þar 1910 með fimm börnum sínum.
Páll lést 1915. Sigrún bjó ekkja með fjórum börnum sínum í Garðsaukahjáleigu 1920, en brá búi og fluttist með Sveini syni sínum til Eyja 1921 og fylgdi honum þar.
Hún lést 1931.

I. Barnsfaðir Sigrúnar var Jón Sigurðsson bóndi á Tjörn og í Seljalandsseli u. Eyjafjöllum, f. 24. mars 1857 í Eyjum, d. 5. apríl 1932.
Barn þeirra:
1. Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja í Efri-Holtum u. Eyjafjöllum, f. 8. júní 1884 í Berjanesi u. Eyjafjöllum, d. 26. maí 1954. Maður hennar Jón Jónasson.

II. Maður Sigrúnar, (1894), var Páll Árnason bóndi, f. 11. mars 1854 að Ártúnum á Rangárvöllum, d. 20. maí 1915.
Börn þeirra hér:
2. Gústav Pálsson sjómaður í Breiðholti, f. 3. febrúar 1889, drukknaði af hlöðnum uppskipunarbát á Víkinni 26. janúar 1923.
3. Sveinn Pálsson verkamaður, f. 2. júní 1896, d. 4. ágúst 1956.
4. Sigríður Kristín Pálsdóttir verkakona, saumakona, f. 5. febrúar 1898, d. 20. mars 1924.
6. Guðrún Pálsdóttir húsfreyja í Stakkholti 1930, síðar á Boðaslóð 1, f. 14. júní 1901, d. 13. desember 1964.
7. Árni Pálsson sjómaður, matsveinn á Auðsstöðum, f. 16. apríl 1903, d. 17. mars 1961.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.