Guðrún Pálsdóttir (Stakkholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Pálsdóttir frá Garðsaukahjáleigu í Hvolhreppi, húsfreyja í Stakkholti og síðar á Boðaslóð 1 fæddist 14. júní 1901 á Efra-Hvoli í Hvolhreppi, Rang. og lést 13. desember 1964.
Foreldrar hennar voru Páll Árnason bóndi, f. 11. mars 1854, d. 20. maí 1915, og kona hans Sigrún Sveinsdóttir húsfreyja, f. 16. október 1864, d. 27. október 1931.

Börn Páls og Sigrúnar í Eyjum voru:
1. Gústav Pálsson sjómaður í Breiðholti, f. 3. febrúar 1889, drukknaði af hlöðnum uppskipunarbát á Víkinni 26. janúar 1923.
2. Sveinn Pálsson verkamaður, f. 2. júní 1896, d. 4. ágúst 1956.
3. Sigríður Kristín Pálsdóttir vinnukona, saumakona, f. 3. febrúar 1898, d. 20. mars 1924.
4. Guðrún Pálsdóttir húsfreyja í Stakkholti 1930, síðar á Boðaslóð 1, f. 14. júní 1901, d. 13. desember 1964.
5. Árni Pálsson sjómaður, matsveinn á Auðsstöðum, f. 16. apríl 1903, d. 17. mars 1961.

Guðrún var með foreldrum sínum í æsku, en faðir hennar lést 1915. Hún var með ekkjunni móður sinni í Garðsaukahjáleigu 1920.
Þau Sigurjón giftu sig 1924 og fluttust til Eyja á því ári.
Hjónin bjuggu í Stakkholti 1930 með þrem börnum sínum. Þau voru komin á Boðaslóð 1 1931 og bjuggu þar síðan meðan báðum entist líf, eignuðust þar fjögur börn.
Guðrún lést 1964. Sigurjón bjó áfram á Boðaslóð, með 3 sonum sínum við Gos. Hann lést 1976.

I. Maður Guðrúnar, (1924), var Sigurjón Eiríksson verkamaður, f. 4. apríl 1896 í Drangshlíðardal u. A-Eyjafjöllum, d. 19. febrúar 1976.
Börn þeirra:
1. Gústav Sigurður Sigurjónsson vörubílstjóri, verkstjóri, f. 15. ágúst 1926 í Stakkholti, d. 16. apríl 2006.
2. Jakob Sigurður Sigurjónsson vörubílstjóri, f. 23. júní 1928 í Stakkholti, d. 20. október 1979.
3. Sigurpáll Sigurjónsson, f. 15. janúar 1930 í Stakkholti, d. 25. september 1931.
4. Sigurpáll Óskar Sigurjónsson vörubílstjóri, f. 17. júlí 1931 á Boðaslóð, d. 10. apríl 1989.
5. Sveinn Adolf Sigurjónsson vörubílstjóri, f. 2. apríl 1934 á Boðaslóð, d. 3. janúar 1987.
6. Eymundur Garðar Sigurjónsson skrifstofumaður, f. 19. september 1937 á Boðaslóð, d. 25. október 1991.
7. Gaukur Geir Sigurjónsson bílstjóri hjá Áhaldahúsinu, f. 26. apríl 1939 á Boðaslóð.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.