„Una Sigurðardóttir (Hruna)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Una Guðrún Rósamunda Sigurðardóttir''' frá Hruna, húsfreyja, fæddist 6. ágúst 1923 að Eiðum við Kirkjuveg og lést 30. apríl 1978...) |
m (Verndaði „Una Sigurðardóttir (Hruna)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 23. febrúar 2018 kl. 17:51
Una Guðrún Rósamunda Sigurðardóttir frá Hruna, húsfreyja, fæddist 6. ágúst 1923 að Eiðum við Kirkjuveg og lést 30. apríl 1978.
Foreldrar hennar voru Sigurður Þorleifsson verkamaður, f. 16. ágúst 1886 á Á á Síðu, V-Skaft., d. 15. maí 1969, og kona hans Margrét Vigdís Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 6. janúar 1898 í Uppsalakoti á Svarfaðardal, Eyjafj.s., d. 19. júlí 1965.
Börn Margrétar og Sigurðar:
1. Gunnlaugur Sigurðsson sjómaður, f. 20. maí 1921 að Reynifelli við Vesturveg 15b, d. 29. nóv. 1963.
2. Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. í Nikhól við Hásteinsveg 22. júní 1922, d. 22. september 2004.
3. Una Guðrún Rósamunda Sigurðardóttir húsfreyja, f. að Eiðum við Kirkjuveg 6. ágúst 1923, d. 30. apríl 1978.
4. Margrét Þorleifsdóttir Sigurðardóttir húsfreyja, f. 3. febr. 1924 í Sjávarborg við Sjómannasund, d. 26. janúar 2012.
5. Fjóla Sigurðardóttir húsfreyja, f. 17. ágúst 1928 í Hruna við Miðstræti, d. 8. nóvember 2013.
6. Pálína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 22. okt. 1929 í Hruna.
7. Eiríkur Sigurðsson sjómaður, útgerðarmaður, verkamaður, bifreiðastjóri, f. 31. jan. 1931 í Hruna, d. 28. nóvember 2007.
8. Oddný Sigurrós Sigurðardóttir (Rósa) húsfreyja, f. 1. okt. 1933 í Hruna, d. 25. febrúar 2013.
9. Einara Sigurðardóttir húsfreyja, f.
17. jan. 1936 í Hruna.
Barn Margrétar:
10. Pétur Sveinsson, f. 16. maí 1918 í Baldurshaga á Fáskrúðsfirði, bifreiðastjóri, síðast í Reykjavík, d. 8. september 1985.
Fósturbarn þeirra, dóttir Unu:
11. Þorgerður Sigurvinsdóttir húsfreyja í Eyjum, síðar í Kópavogi, f. 8. október 1943.
Una var með foreldrum sínum í æsku.
Hún fluttist úr bænum í byrjun fimmta áratugarins, bjó í Hafnarfirði, giftist Sigurvin og eignaðis með honum 4 börn, Sigmar Hjört 1942, Þorgerði 1943. Hún fór í fóstur til móðurforeldra sinna í Hruna 6-8 vikna gömul og ólst þar upp.
Þau Sigurvin eignuðust enn tvo drengi. Þau skildu.
Una giftist Bergi. Þau voru barnlaus.
Bergur lést 1973 og Una lést 1978.
I. Fyrri maður Unu, var Sigurvin Jensson, f. 10. apríl 1916, d. 9. júlí 1953.
Börn þeirra:
1. Sigmar Hjörtur Sigurvinsson, f. 4. október 1942. Hann býr í Danmörku.
2. Þorgerður Sigurvinsdóttir húsfreyja, f. 8. október 1943. Maður hennar er Hannes Bjarnason.
3. Bragi Jens Sigurvinsson ökukennari á Álftanesi, f. 15. september 1948. Kona hans er Alma Hanna Guðmundsdóttir.
4. Sigurvin Jensson Sigurvinsson verkamaður, f. 10. september 1952. Hann býr á Selfossi. Kona hans var Helga Guðmundsdóttir.
II. Síðari maður Unu, (10. maí 1963), var Bergur Thorberg Bergsson sjómaður, f. 22. maí 1928, d. 22. júní 1973. Þau voru barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.