„Sigurður Jónsson (Húsavík)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: 200px|thumb|''Sigurður Jónsson. '''Sigurður Jónsson''' frá Húsavík, verkamaður, umsjónarmaður, íþróttafrömuður fæddist 22. s...) |
m (Verndaði „Sigurður Jónsson (Húsavík)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 26. nóvember 2017 kl. 18:11
Sigurður Jónsson frá Húsavík, verkamaður, umsjónarmaður, íþróttafrömuður fæddist 22. september 1930 í Húsavík og lést 24. maí 2014.
Foreldrar hans voru Jón Auðunsson skósmiður, f. 12. ágúst 1891 í Gerðum á Stokkseyri, d. 15. mars 1975, og kona hans Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 29. nóvember 1888 á Nesi í Selvogi, d. 19. júní 1980.
Börn Jóns og Sigríðar voru:
1. Sigríður Jónsdóttir, f. 6. febrúar 1918 á Gjábakka, d. 30. ágúst 1958.
2. Borgþór Jónsson kennari, f. 11. desember 1919 í Húsavík, d. 4. júlí 1968.
3. Jóna Alda Jónsdóttir, f. 17. apríl 1923 í Húsavík, d. 5. janúar 2015.
4. Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 19. mars 1925 í Húsavík.
5. Jón Vídalín Jónsson, f. 19. desember 1926 í Húsavík.
6. Ísleifur Jónsson, f. 25. apríl 1928 í Húsavík, d. 21. ágúst 2008.
7. Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 30. september 1929 í Húsavík.
8. Sigurður Jónsson verkamaður, íþróttafrömuður, f. 22. desember 1930 í Húsavík, d. 24. maí 2014.
Sigurður ólst upp hjá foreldrum sínum, en dvaldi um tveggja ára skeið í Djúpadal á Rangárvöllum, var verkamaður og um skeið verkstjóri.
Hann hafði sérstakan áhuga á íþróttastarfsemi og vann árum saman við umsjón og hvatningu ungs fólks til íþróttaiðkana einkum frjálsra íþrótta.
Sigurður var umsjónarmaður íþróttavallanna áratugum saman.
Hann dvaldi að síðustu í Hraunbúðum og lést 2014.
Kona Sigurðar, (skildu), var Guðbrandína Sveinsína Kristinsdóttir húsfreyja, f. 19. júlí 1938.
Barn þeirra:
1. Kristinn Sigurðsson, fæddur 22. september 1964.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið 7. júní 2008. Minning.
- Prestþjónustubækur.
- Saga knattspyrnufélagsins Týs. Birgir Þór Baldvinsson skráði. Útgefandi: Útgáfustjórn Knattspyrnufélagsins Týs: Rútur Snorrason, Gústaf Baldvinsson og Martin Eyjólfsson. Heimaslóð 2006.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.