„Dráttarbraut Vestmannaeyja“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 9: | Lína 9: | ||
*[[Ársæll Sveinsson]] útgerðarmaður [[Fagrabrekka|Fögrubrekku]], | *[[Ársæll Sveinsson]] útgerðarmaður [[Fagrabrekka|Fögrubrekku]], | ||
*[[Guðmundur Jónsson]] [[Háeyri]], | *[[Guðmundur Jónsson]] [[Háeyri]], | ||
*[[Gunnar | *[[Gunnar Marel Jónsson]] [[Brúarhús]]i, | ||
*[[Hannes Hansson]] [[Hvoll|Hvoli]], | *[[Hannes Hansson]] [[Hvoll|Hvoli]], | ||
*[[Ólafur Ingileifsson]] [[Víðivellir|Víðivöllum]], | *[[Ólafur Ingileifsson]] [[Víðivellir|Víðivöllum]], |
Útgáfa síðunnar 7. júlí 2006 kl. 08:52
Þann 21. maí árið 1925 var settur fundur á Borg með þeim tilgangi að koma á fót félagsskap til að byggja slipp eða dráttarbraut í Vestmannaeyjum fyrir litla báta og skip. Á fundinn mættu:
- Gunnar Ólafsson konsúll Vík,
- Jón Sverrisson yfirfiskmatsmaður Háagarði,
- Jón Ólafsson útgerðarmaður Hólmi,
- Stefán Björnsson útgerðarmaður Skuld,
- Jóhann Þ. Jósefsson alþingismaður Fagurlyst,
- Helgi Benediktsson kaupmaður Hörgsholti,
- Þorsteinn Jónsson kaupmaður Jónsborg,
- Ársæll Sveinsson útgerðarmaður Fögrubrekku,
- Guðmundur Jónsson Háeyri,
- Gunnar Marel Jónsson Brúarhúsi,
- Hannes Hansson Hvoli,
- Ólafur Ingileifsson Víðivöllum,
- Jón Jónsson Hlíð,
- Sigurður Ingimundarson Skjaldbreið,
- Guðjón Jónsson Heiði.
Fékk félagið nafnið Dráttarbraut Vestmannaeyja hf. og er með elstu hlutafélögum í Vestmannaeyjum. Eftir að búið var að stofna félagið var Gunnar Marel Jónsson forstöðumaður. Ákveðið var að senda hann til Noregs til þess að leita eftir tilboði í braut handa félaginu. Ferðin gekk vel og fyrirtækið Mjölnir í Bergen smíðaði vagninn og spilið.
Fyrsti báturinn var tekinn upp um haustið 1925. Hann hét Garðar. Í honum átti Filippus Árnason hlut, en hann átti einnig síðasta bátinn sem fór á flot af þessari braut þrjátíu og fjórum árum seinna, Létti. Dráttarbraut Vestmannaeyja þjónustaði bátaflotann í Vestmannaeyjum í um 60 ár.
Heimildir
- Eggert Gunnarsson. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1985.