„Ingunn Jónsdóttir (Gjábakka)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Ingunn Jónsdóttir''' húsfreyja frá Brunnum í Suðursveit fæddist 4. júlí 1885 í Brunnum og lést 18. júní 1918.<br> Foreldrar hennar voru Jón Þorsteinsson bóndi á Br...)
 
m (Verndaði „Ingunn Jónsdóttir (Gjábakka)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 30. janúar 2017 kl. 19:31

Ingunn Jónsdóttir húsfreyja frá Brunnum í Suðursveit fæddist 4. júlí 1885 í Brunnum og lést 18. júní 1918.
Foreldrar hennar voru Jón Þorsteinsson bóndi á Brunnum í Suðursveit og Krossalandi í Lóni, f. 6. maí 1844, d. 2. júlí 1919 og kona hans Steinunn Jónsdóttir húsfreyja, f. 15. nóvember 1846, d. 19. júlí 1928.

Ingunn var tökubarn á Kálfafelli í Suðursveit 1890.
Hún var á Horni í A-Skaft. 1907 við fæðingu Ásgeirs, á Strönd í Stöðvarfirði 1908 við fæðingu Óskars Hafsteins og við fæðingu Nönnu 1910. Nanna var send í fóstur að Garðstöðum í Útskálasókn og ólst þar upp.
Ingunn kom frá Hafranesi í Fáskrúðsfirði að Gjábakka 1910 með Ásgeir og Óskar Hafstein.
Þau bjuggu á Gjábakka 1911, Nýlendu 1912, Kirkjubæ 1914, í París 1916 og á Eiðinu 1918. Þau voru síðustu íbúar þar.
Ingunn lést 1918, rúmri viku eftir barnsfæðingu.

Sambýlismaður Ingunnar var Einar Þórðarson verkamaður frá Götu í Holtum, f. 9. júní 1882, d. 12. febrúar 1925.
Börn þeirra
1. Ásgeir Einarsson, f. 14. febrúar 1907 á Horni í Bjarnanessókn í A-Skaft., d. 23. desember 1983.
2. Óskar Hafsteinn Einarsson, f. 6. september 1908 á Strönd í Stöðvarfirði, d. 27. nóvember 1932. Hann var í fóstri hjá Stefáni föðurbróður sínum á Vilborgarstöðum 1910, hjá Sigurði Jónssyni móðurbróður sínumá Krossalandi í Lóni 1920.
3. Nanna Einarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 14. janúar 1910 á Strönd í Stöðvarfirði, d. 3. janúar 1997. Hún var alin upp á Skeggjastöðum í Gerðahreppi hjá Guðnýju Gísladóttur og Guðmundi Guðmundssyni skósmið.
4. Guðlaug Lovísa Einarsdóttir, f. 14. janúar 1911 á Gjábakka, d. 16. maí 1993. Hún var fósturbarn á Kirkjubóli 1920.
5. Helga Einarsdóttir, f. 10. október 1912 á Nýlendu, d. 13. febrúar 1993. Hún var í fóstri á Felli í Breiðdal 1920.
6. Páll Vídalín Einarsson bifreiðastjóri, f. 20. nóvember 1914 á Kirkjubæ, d. 13. desember 1988. Hann var í fóstri hjá ekkjunni ömmu sinni á Krossalandi í Lóni 1920.
7. Svanhvít Kristín Einarsdóttir, f. 18. desember 1916 í París, d. 20. maí 1934. Hún var fóstruð á Heklu hjá Guðjóni föðurbróður sínum og konu hans Valgerði Þorvaldsdóttur, var vinnukona hjá Sigurði Gunnarssyni og Sigríði Geirsdóttur á Heimagötu 25 1930.
8. Kristinn Ingi Einarsson, f. 10. júní 1918 á Eiðinu, d. 13. nóvember 1945. Hann var fóstraður hjá Guðrúnu Eyjólfsdóttur á Reynivöllum í Suðursveit, A-Skaft.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók II – Ásahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Ásahreppur 2007.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.