„Hermann Benediktsson (Bergholti)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Hermann Benediktsson (Bergholti)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 11: | Lína 11: | ||
Hermann var með foreldrum sínum á Borgareyri í æsku, tók þátt í störfum til lands og sjávar í stórri fjölskyldu á unga aldri, reri um skeið til fiskjar með Benedikt bróður sínum.
| Hermann var með foreldrum sínum á Borgareyri í æsku, tók þátt í störfum til lands og sjávar í stórri fjölskyldu á unga aldri, reri um skeið til fiskjar með Benedikt bróður sínum.

Hann fluttist til Eyja frá Mjóafirði 1920, var þá leigjandi á [[Breiðablik]]i hjá [[Gísli J. Johnsen|Gísla Johnsen]].
| Hann fluttist til Eyja frá Mjóafirði 1920, var þá leigjandi á [[Breiðablik]]i hjá [[Gísli J. Johnsen|Gísla Johnsen]].

Helga Pálmey fluttist til Eyja 1924 og þau giftu sig á árinu og bjuggu í [[Godthaab]], eignuðust Ölmu þar 1925 og Jóhönnu 1929. Þau voru enn í Godthaab 1934, en voru komin í [[Fagurlyst]] 1940, í [[Bergholt]] 1943 við fæðingu Eddu Sigríðar og | Helga Pálmey fluttist til Eyja 1924 og þau giftu sig á árinu og bjuggu í [[Godthaab]], eignuðust Ölmu þar 1925 og Jóhönnu 1929. Þau voru enn í Godthaab 1934, en voru komin í [[Fagurlyst]] 1940, í [[Bergholt]] 1943 við fæðingu Eddu Sigríðar og bjuggu þar síðan.

Hermann var í fyrstu starfsmaður hjá Gísla Johnsen og verkstjóri. Síðar var hann innheimtumaður hjá Vestmannaeyjabæ.
| Hermann var í fyrstu starfsmaður hjá Gísla Johnsen og verkstjóri. Síðar var hann innheimtumaður hjá Vestmannaeyjabæ.

Hann lést 1959 í Eyjum. | Hann lést 1959 í Eyjum. |
Útgáfa síðunnar 18. desember 2016 kl. 14:35
Hermann Benediktsson frá Borgareyri í Mjóafirði eystra, verkstjóri, innheimtumaður fæddist 12. febrúar 1887 á Borgareyri og lést 7. desember 1959.
Foreldrar hans voru Benedikt Sveinsson frá Ormsstöðum í Norðfirði, bóndi, útgerðarmaður, f. 2. janúar 1846, d. 4. september 1931, og kona hans Margrét Hjálmarsdóttir frá Brekku í Mjóafirði, húsfreyja, f. 18. maí 1853, d. 23. febrúar 1907.
Bræður Hermanns í Eyjum voru:
1. Ragnar Benediktsson verkstjóri, vigtarmaður, skipaafgreiðslumaður, tónlistarmaður, f. 14. mars 1895, d. 7. júní 1968.
2. Sveinn Benediktsson bóndi á Borgareyri, síðar á Lundi, f. 25. janúar 1880.
Dóttir Sveins var
a) Margrét Sigríður Svava Sveinsdóttir húsfreyja á Borgareyri, síðar á Lundi, f. 27. apríl 1914, d. 18. september 2011.
Hermann var með foreldrum sínum á Borgareyri í æsku, tók þátt í störfum til lands og sjávar í stórri fjölskyldu á unga aldri, reri um skeið til fiskjar með Benedikt bróður sínum.
Hann fluttist til Eyja frá Mjóafirði 1920, var þá leigjandi á Breiðabliki hjá Gísla Johnsen.
Helga Pálmey fluttist til Eyja 1924 og þau giftu sig á árinu og bjuggu í Godthaab, eignuðust Ölmu þar 1925 og Jóhönnu 1929. Þau voru enn í Godthaab 1934, en voru komin í Fagurlyst 1940, í Bergholt 1943 við fæðingu Eddu Sigríðar og bjuggu þar síðan.
Hermann var í fyrstu starfsmaður hjá Gísla Johnsen og verkstjóri. Síðar var hann innheimtumaður hjá Vestmannaeyjabæ.
Hann lést 1959 í Eyjum.
Kona Hermanns, (5. júní 1924), var Helga Pálmey Benediktsdóttir frá Kimbastöðum í Skagafirði, f. 6. apríl 1902, d. 18. september 1970.
Börn þeirra:
1. Alma Alvilda Hermannsdóttir skipsþerna hjá Eimskipafélaginu, f. 23. maí 1925 í Godthaab, d. 14. júní 2015.
2. Jóhanna Hermannsdóttir húsfreyja, tannsmiður, f. 1. júní 1929 í Godthaab. Hún býr Vestanhafs.
3. Edda Sigríður Hermannsdóttir húsfreyja, hagfræðingur, f. 12. júlí 1943 í Bergholti.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Edda Sigríður Hermannsdóttir.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Mjófirðingasögur. Vilhjálmur Hjálmarsson. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1987-1990.
- Skagfirskar æviskrár – Tímabilið 1890-1910. Margir höfundar. Ritstjóri: Eiríkur Kristinsson. Sögufélag Skagfirðinga, Sauðárkróki 1964-1972.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.