Jóhanna Hermannsdóttir (Bergholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jóhanna Hermannsdóttir.

Jóhanna Hermannsdóttir húsfreyja, tannsmiður fæddist 1. júní 1929 í Godthaab og lést 14. janúar 2023.
Foreldrar hennar voru Hermann Benediktsson frá Borgareyri í Mjóafirðir, verkstjóri, innheimtumaður, f. 12. febrúar 1887, d. 7. desember 1959, og kona hans Helga Pálmey Benediktsdóttir frá Kimbastöðum í Skagafirði, húsfreyja, f. 6. apríl 1902, d. 18. september 1970.

Börn Helgu og Hermanns:
1. Alma Alvilda Hermannsdóttir skipsþerna hjá Eimskipum, f. 23. maí 1925 í Godthaab, d. 14. júní 2015.
2. Jóhanna Hermannsdóttir húsfreyja, tannsmiður, f. 1. júní 1929 í Godthaab, d. 14. janúar 2023. Hún bjó Vestanhafs.
3. Edda Sigríður Hermannsdóttir húsfreyja, hagfræðingur, f. 12. júlí 1943 í Bergholti.

Jóhanna var með foreldrum sínum í æsku, í Godthaab, Fagurlyst og Bergholti.
Hún lærði tannsmíði hjá Ingrid Sigfússon og Ólafi Thorarensen og fékk tannsmíðaréttindi 1951.
Þau Hannes giftu sig 1951, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Bandaríkjunum.

I. Maður Jóhönnu, (26. desember 1951), var Hannes Björn Kristinsson frá Akureyri, efnaverkfræðingur í Bandaríkjunum, f. 20. júní 1928, d. 1. janúar 2007. Foreldrar hans voru Kristinn Randver Stefánsson verkamaður á Akureyri, f. 17. júlí 1891 á Hraunhöfða, d. 2. desember 1973, og kona hans Elínborg Jónsdóttir húsfeyja, f. 17. september 1895 á Kálfsá í Ólafsfirði, d. 15. október 1992.
Börn þeirra:
1. Helgi Hermann Hannesson líffræðingur í Svíþjóð, f. 16. júní 1953 í Reykjavík. Kona hans Guðrún Magnúsdóttir.
2. Jón Kristinn Hannesson býr í Bandaríkjunum, f. 15. maí 1955 í Reykjavík. Kona hans Laura Akselsen Kristinsson.
3. Herdís Hannesdóttir, f. 4. apríl 1959. Maður hennar Peter Sobel.
4. Agnes Sandra Hannesdóttir býr í Bandaríkjunum, f. 20. maí 1965. Maður hennar Marvin Wood.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Verkfræðingatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson. Þjóðsaga ehf. 1996.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.