„Ragnheiður Kristjánsdóttir (Flötum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Kristjana ''Ragnheiður'' Kristjánsdóttir''' húsfreyja á Oddeyri, (Flötum 14) fæddist 12. janúar 1906 á Múla og lést 6. september 1982.<br> Foreldra...)
 
m (Verndaði „Ragnheiður Kristjánsdóttir (Flötum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 1. nóvember 2016 kl. 20:24

Kristjana Ragnheiður Kristjánsdóttir húsfreyja á Oddeyri, (Flötum 14) fæddist 12. janúar 1906 á Múla og lést 6. september 1982.
Foreldrar hennar voru Kristján Gunnarsson sjómaður, verkamaður, f. 13. júní 1882 á Sperðli í V-Landeyjum, d. 26. ágúst 1926, og Helga Jónsdóttir húsfreyja, f. 4. mars 1864 á Grímsstöðum í V-Landeyjum, d. 17. janúar 1946

Bróðir Ragnheiðar var
1. Gunnar Kristjánsson, f. 10. júní 1913 í Laufási, d. 11. maí 1939.
Systir Helgu var
2. Elín Jónsdóttir húsfreyja á Eystri-Oddsstöðum, kona Þórarins Árnasonar bónda og bæjarfulltrúa.

Ragnheiður var með foreldrum sínum á Múla, og Brekku 1910, í Laufási 1920 og við fæðingu Helgu 1925.
Þau Ólafur Ragnar giftu sig 1924, bjuggu í Laufási 1927, voru komin að Oddeyri 1930 og þar bjuggu þau síðan.
Þau eignuðust þrjú börn, en misstu yngsta barnið á öðru ári þess.

Maður Ragnheiðar, (18. október 1924), var Ólafur Ragnar Sveinsson bifreiðastjóri, heilbrigðisfulltrúi, þá á Rafnseyri, f. 25. ágúst 1903 á Árgilsstöðum í Hvolhreppi, d. 2. maí 1970.
Börn þeirra:
1. Helga Ólafsdóttir húsfreyja, f. 13. janúar 1925 í Laufási, d. 11. apríl 1997
2. Margrét Ólafsdóttir húsfreyja, leikari, f. 12. júní 1931 á Oddeyri á Flötum, d. 24. mars 2011.
3. Kristín Ólafsdóttir, f. 17. febrúar 1935 á Oddeyri á Flötum, d. 5. júlí 1936.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.