„Margrét Theodóra Gunnarsdóttir“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Margrét Theodóra Gunnarsdóttir''' húsfreyja í Reykjavík fæddist 1. nóvember 1911 í Fagurhól og lést 28. apríl 1991.<br> Foreldrar hennar voru [[Gunnar Ma...) |
m (Verndaði „Margrét Theodóra Gunnarsdóttir“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 28. febrúar 2016 kl. 20:16
Margrét Theodóra Gunnarsdóttir húsfreyja í Reykjavík fæddist 1. nóvember 1911 í Fagurhól og lést 28. apríl 1991.
Foreldrar hennar voru Gunnar Marel Jónsson skipasmíðameistari, f. 6. janúar 1891, d. 7. maí 1979 og barnsmóðir hans Jónína Jóhannsdóttir, síðar húsfreyja í Garðsauka og á Hamri, f. 30. október 1886, d. 6. september 1976.
Margrét var í fóstri í Sædal (Vesturvegi 6) hjá Nikulási Illugasyni og Katrínu Pálsdóttur, var þar enn 1927, en var farin úr Eyjum 1930.
Hún giftist Guðjóni 1934. Þau bjuggu í Reykjahlíð 12 í Reykjavík,
eignuðust 4 börn.
Maður Margrétar Theodóru, (í nóvember 1934), var Guðjón Sigurðsson múrarameistari, f. 16. febrúar 1910.
Börn þeirra:
1. Auður Guðjónsdóttir kennari og húsfreyja í Reykjavík, síðan í Glenboro í Kanada.
2. Unnur Guðjónsdóttir húsfreyja í Stokkhólmi, ballettkennari, f. 10. ágúst 1940.
3. Bergljót Guðjónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 5. desember 1941.
4. Bragi Guðjónsson múrari í Reykjavík, f. 26. desember 1944.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Bergsætt II. útgáfa. Guðni Jónsson 1966.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.