„Lovísa Gísladóttir (yngri)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Lovísa Gísladóttir''' yngri fæddist 22. nóvember 1952.<br> Foreldrar hennar voru Gísli Bryngeirsson frá Búastöðum, úrsmiður, tónlistarmaður, f. 13. maí 1928, d. 10. júní 2014, og kona hans Gréta Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 29. júlí 1934, d. 14. nóvember 2015. Börn Grétu og Gísla:<br> 1. Lovísa Gísladóttir, f. 22. n...) |
m (Verndaði „Lovísa Gísladóttir (yngri)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 11. mars 2024 kl. 10:19
Lovísa Gísladóttir yngri fæddist 22. nóvember 1952.
Foreldrar hennar voru Gísli Bryngeirsson frá Búastöðum, úrsmiður, tónlistarmaður, f. 13. maí 1928, d. 10. júní 2014, og kona hans Gréta Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 29. júlí 1934, d. 14. nóvember 2015.
Börn Grétu og Gísla:
1. Lovísa Gísladóttir, f. 22. nóvember 1952.
2. Steinunn Ingibjörg Gísladóttir, f. 16. febrúar 1954.
3. Konráð Gíslason, f. 20. ágúst 1960.
4. Hrafnhildur Gísladóttir, f. 22. ágúst 1962. Hún dó 6 mánaða gömul.
Lovísa lærði bókhald í Gagnfræðaskólanum.
Hún vann á Skattstofunni og ýmislegt annað.
Þau Helgi giftu sig 1974, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Smáragötu 28. Þau skildu.
I. Maður Lovísu, (í desember 1974, skildu 1994), er Helgi Ágústsson frá Seyðisfirði, sjómaður, skipstjóri, f. 5. mars 1953.
Börn þeirra:
1. Hrafnhildur Helgadóttir, starfar með þroskaheftum, f. 6. desember 1970. Maður hennar Jóhann Þorvaldsson.
2. Ágúst Gísli Helgason, sjómaður, f. 12. október 1973. Kona hans Hildur Gísladóttir.
3. Axel Jóhann Helgason bifvélavirki, f. 22. júní 1990. Kona hans Arndís Sigurðardóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Lovísa.
- Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.