„Árni Sigfússon (Skálholti)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

(2 millibreytingar ekki sýndar frá sama notandanum)
Lína 15: Lína 15:
Þau bjuggu síðustu ár hans í [[Skálholt-yngra|Skálholti]] við [[Urðavegur|Urðaveg]].
Þau bjuggu síðustu ár hans í [[Skálholt-yngra|Skálholti]] við [[Urðavegur|Urðaveg]].

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: [[Ritverk Árna Árnasonar/Árni Sigfússon (Skálholti)]]
{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Upphaflegan texta skrifaði [[Þorsteinn Víglundsson]] og birtist hann á bls. 32 í greininni  „Frumherjar“ í ''[[Blik 1967]]''.
* Upphaflegan texta skrifaði [[Þorsteinn Víglundsson]] og birtist hann á bls. 32 í greininni  „Frumherjar“ í ''[[Blik 1967]]''.

=Frekari umfjöllun=
'''Árni Sigfússon''' kaupmaður í [[Skálholt-yngra|Skálholti]] fæddist 31. júlí 1887 og fórst í flugslysi 7. mars 1948.

Foreldrar hans voru [[Sigfús Árnason|Sigfús Árnason]] bóndi, organisti, póstafgreiðslumaður og alþingismaður á [[Lönd]]um, f. 10. september 1856, d. 5. júní 1922 og kona hans, (skildu), [[Jónína K.N. Brynjólfsdóttir (Löndum)|Jónína Kristín Nikólína]], f. 14. ágúst 1856, d. 16. nóvember 1906.

Kona Árna var [[Ólafía Árnadóttir (Skálholti)|Ólafía Sigríður]], f. 8. maí 1895 að Gerðakoti í Gerðum, d. 15. mars 1962.
Börn Árna og Ólafíu:

1. [[Jón Árni Árnason|Jón Árni]] skrifstofumaður, f. 10. mars 1916, d. 2. ágúst 1970, kvæntur [[Þyrí Björnsdóttir (Kirkjubæ)|Þyrí Björnsdóttur]], f. 29. september 1915, d. 3. febrúar 1954, dóttur [[Björn Guðjónsson (Kirkjubóli)|Björns Guðjónssonar]] á [[Kirkjubær|Kirkjubæ]] og konu hans [[Sigríður Jónasdóttir (Heimagötu 30)|Sigríðar Jónasdóttur]].

2. [[Ragnheiður Árnadóttir (Skálholti)|Ragnheiður]] húsfreyja, f. 10. október 1918, gift bandarískum manni.

3. [[Guðni Hjörtur Árnason (Skálholti)|Guðni Hjörtur]] smiður, fæddur 14. ágúst 1920, d. 3. október 1965.

4. [[Elín Árnadóttir (Skálholti)|Elín]] húsfreyja, fædd 18. september 1927, d. 7. október 2003, gift [[Gunnar Stefánsson (Gerði)|Gunnari Stefánssyni]] vélstjóra frá [[Gerði-litla|Gerði]], f. 16. desember 1922, d. 27. desember 2010.

5. [[Elísabet Árnadóttir (Skálholti)|Elísabet]], f. 4. mars 1930, húsfreyja og framkvæmdastjóri Geðverndarfélags Íslands, gift Jóhanni Möller, f. 7. febrúar 1920, d. 26. febrúar 2011.

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

Árni var fremur hár maður, dökkhærður, vel þrekinn um herðar, og sín síðari ár nokkuð holdugur. Hann var vel sterkur maður, mjög lipur í hreyfingum, föngulegur á velli og fríður.

Hann var kátur og fjörugur, glensfullur og fyndinn vel og orðhagur, en átti þó til að vera mjög þungur í skapi, stríðinn og stirfinn; skap hans var þó létt yfirleitt, en þó gat hann reiðst illa og var yfirleitt bráður, en reiðin rokin úr honum á sama augnabliki og vildi þá allt gott gera.

Hann var vel látinn maður og vinhollur. Árni var vel miðlungs veiðimaður og tók virkan þátt í fuglatekju í ýmsum úteyjum og kom sér vel meðal starfsfélaga sinna, frískur ætíð og fær um margt. Hann hætti snemma veiðum, varð kaupmaður og útgerðarmaður í stórum stíl, hugsjónamaður mikill, braust í mörgu, sigraði í dag, tapaði á morgun.

{{Árni Árnason}}
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
*Íslendingabók.is.
*Garður.is.}}
[[Flokkur: Kaupmenn]]
[[Flokkur: Kaupmenn]]
[[Flokkur: Útgerðarmenn]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur: Íbúar við Heimagötu]]
[[Flokkur: Íbúar við Heimagötu]]
[Flokkur: Íbúar í Langa-Hvammi]]
[[Flokkur: Íbúar í Langa-Hvammi]]
[[Flokkur: Íbúar í Skálholti]]
[[Flokkur: Íbúar í Skálholti]]
[[Flokkur:Kaupmenn]]
[[Flokkur:Útgerðarmenn]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur:Íbúar við Urðaveg]]
[[Flokkur:Íbúar við Urðaveg]]

Núverandi breyting frá og með 13. ágúst 2013 kl. 12:10

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Árni Sigfússon

Systkinin frá Vestri-Löndum. Standandi frá vinstri: Brynjólfur og Árni. Sitjandi: Leifur og Ragnheiður Stefanía.

Árni Sigfússon fæddist 31. júlí 1887 að Vestri-Löndum og lést 7. mars 1948. Foreldrar hans voru Sigfús Árnason og Jónína Brynjólfsdóttir.

Haustið 1906 sigldi Árni til Kaupmannahafnar og nam þar verzlunarfræði um veturinn. Síðan var hann skrifstofumaður hjá Thorefélaginu, sem m. a. rak millilanda- og strandferðaskip hér við land um árabil. Árið 1910 stofnaði Árni hér eigin verzlun, og svo efndi hann til útgerðar og var um skeið athafnamikill atvinnurekandi í heimabyggð sinni. Útgerð rak hann síðan til síðustu ára. - Árni kvæntist 11. desember 1915 Ólafíu Árnadóttur frá Gerðum á Miðnesi. Þau eignuðust 5 börn. Eitt þeirra, frú Elín kona Gunnars Stefánssonar frá Gerði, er búsett hér í bænum.

Verzlunarhús Árna. Íslandsbanki eignaðist hús þetta á sínum tíma og var fluttur í það 1929 og starfræktur þar til sinnar aldurtilastundar eða þar til í apríl 1930. Þá tók Útvegsbanki Íslands við húsinu, og var hann starfræktur þar til 1956, en þá var hann fluttur í nýbyggingu sina við Kirkjuveg.

Árni Sigfússon lézt í flugslysi 7. marz 1948, er Ansonvél með 4 mönnum fórst í flugi milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur.

Árni bar ýmis einkenni ættar sinnar, svo að áberandi var. Hann var trygglyndur og vinafastur, gáfaður og íhyglinn.

Þau bjuggu síðustu ár hans í Skálholti við Urðaveg.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Árni Sigfússon (Skálholti)

Heimildir