„Guðrún Sveinsdóttir (Núpi)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Gudrun Sveinsdottir.jpg|thumb|200px|''Guðrún Sveinsdóttir.]] | |||
'''Guðrún Sveinsdóttir''' frá Núpi u. Eyjafjöllum, húsfreyja, verkakona, saumakona, ræstitæknir, bókbindari fæddist þar 14. nóvember 1933 og lést 25. desember 2023.<br> | '''Guðrún Sveinsdóttir''' frá Núpi u. Eyjafjöllum, húsfreyja, verkakona, saumakona, ræstitæknir, bókbindari fæddist þar 14. nóvember 1933 og lést 25. desember 2023.<br> | ||
Foreldrar hennar voru Sveinn Sigurðsson bóndi, f. 29. ágúst 1886, d. 7. desember 1947, og kona hans Ólöf Ólafsdóttir húsfreyja, f. 15. nóvember 1892, d. 6. ágúst 1955. | Foreldrar hennar voru Sveinn Sigurðsson bóndi, f. 29. ágúst 1886, d. 7. desember 1947, og kona hans Ólöf Ólafsdóttir húsfreyja, f. 15. nóvember 1892, d. 6. ágúst 1955. |
Núverandi breyting frá og með 20. janúar 2024 kl. 13:54
Guðrún Sveinsdóttir frá Núpi u. Eyjafjöllum, húsfreyja, verkakona, saumakona, ræstitæknir, bókbindari fæddist þar 14. nóvember 1933 og lést 25. desember 2023.
Foreldrar hennar voru Sveinn Sigurðsson bóndi, f. 29. ágúst 1886, d. 7. desember 1947, og kona hans Ólöf Ólafsdóttir húsfreyja, f. 15. nóvember 1892, d. 6. ágúst 1955.
Börn Ólafar og Sveins í Eyjum:
1. Sigríður Sveinsdóttir húsfreyja Reynisholti við Faxastíg 12, f. 3. mars 1922, d. 14. október 2003. Maður hennar Eggert Pálsson.
2. Guðmunda Sigurbjörg Sveinsdóttir, f. 1927, d. 2020. Maður hennar Ólafur Sæmundsson.
3. Ólafía Ingibjörg Sveinsdóttir húsfreyja, f. 13. nóvember 1928, d. 21. febrúar 2014. Maður hennar Eyjólfur Pálmi Árnason.
4. Guðrún Sveinsdóttir húsfreyja á Búastaðabraut 14, f. 14. nóvember 1933. Maður hennar Sigurður Kristjánsson.
Guðrún var með foreldrum sínum, en faðir hennar lést, er hún var 14 ára. Hún flutti til Eyja 1953, bjó hjá Sigríði systur sinni í Reynisholti.
Þau Sigurður giftu sig 1963, eignuðust fjögur börn. Þau byggðu húsið við Búastaðabraut 14, en misstu það í Gosinu 1973.
Þau fluttu til Reykjavíkur, bjuggu síðast í Árskógum 6.
Sigurður lést 2000.
Guðrún dvaldi síðast á Hrafnistu í Boðaþingi í Kópavogi.
Hún lést 2023.
I. Maður Guðrúnar, (2. júní 1963), var Sigurður Kristjánsson frá Flatey á Skjálfanda, matsveinn, útgerðarmaður, verkstjóri, f. 2. maí 1918 á Víðivöllum í Fnjóskadal, S.-Þing., d. 22. janúar 2000.
Börn þeirra:
1. Ólöf Sveinbjörg Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur, f. 2. mars 1963 í Eyjum. Maður hennar Hilmar Adolfsson Óskarssonar.
2. Sigurður Sigurðsson rafmagnsiðnfræðingur, f. 13. júní 1964 í Eyjum. Kona hans Hjördís Rósantsdóttir.
3. Sigríður Kristín Sigurðardóttir leikskólakennari, f. 28. september 1967 í Eyjum. Maður hennar Ólafur Valsson.
4. Ingibjörg Sigurlín Sigurðardóttir kennari, f. 9. júní 1972 í Eyjum. Maður hennar Óskar Ólafur Arason.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
- Íslendingabók.is.
- Morgunblaðið 4. febrúar 2000. Minning Sigurðar.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.