„Björn Sigurðsson (Pétursborg)“: Munur á milli breytinga
(Til aðgreiningar alnafna.) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:KG-mannamyndir 1111.jpg|thumb|200px|Björn í Pétursborg.]] | [[Mynd:KG-mannamyndir 1111.jpg|thumb|200px|Björn í Pétursborg.]] | ||
'''Einar ''Björn'' Sigurðsson''' var fæddur 25. október 1895 við Seyðisfjörð og 14. nóvember 1964. Hann ólst upp í [[Pétursborg]] hjá foreldrum sínum [[Sigurður Vigfússon|Sigurði Vigfússyni]] og [[Ingibjörg Björnsdóttir (Pétursborg)|Ingibjörgu Björnsdóttur]]. Kona hans var [[Ingveldur Jónsdóttir (Hörgsholti)|Ingveldur Jónsdóttir]]. Börn þeirra eru [[Ingibjörg Ágústa Björnsdóttir|Ágústa]] og [[Alda Björnsdóttir|Alda]]. Þau byrjuðu að búa í [[Valhöll]] og svo í [[Hörgsholt]]i. Í hvoru húsi eignuðust þau sitthvora dótturina. | '''Einar ''Björn'' Sigurðsson''' var fæddur 25. október 1895 við Seyðisfjörð og 14. nóvember 1964. Hann ólst upp í [[Pétursborg]] hjá foreldrum sínum [[Sigurður Vigfússon|Sigurði Vigfússyni]] og [[Ingibjörg Björnsdóttir (Pétursborg)|Ingibjörgu Björnsdóttur]]. Kona hans var [[Ingveldur Jónsdóttir (Hörgsholti)|Ingveldur Jónsdóttir]]. Börn þeirra eru [[Ingibjörg Ágústa Björnsdóttir|Ágústa]] og [[Alda Björnsdóttir (Hörgsholti)|Alda]]. Þau byrjuðu að búa í [[Valhöll]] og svo í [[Hörgsholt]]i. Í hvoru húsi eignuðust þau sitthvora dótturina. | ||
Björn, eins og hann var kallaður, byrjaði ungur að vinna í versluninni [[Fram]]. Einnig vann hann hjá [[Georg Gíslason|Georg Gíslasyni]] og [[Jóhannes Long|Jóhannesi Long]]. Á árunum 1939 til 1941 vann hann í verslun bróður síns á Norðfirði ásamt því að stunda sjóinn. Þegar fjölskyldan kom til baka til Eyja fluttist hún í kjallara Pétursborgar og bjó þar þangað til þau keyptu íbúðina að [[Heiðarvegur|Heiðarvegi]] 30, einn [[Verkamannabústaðir (við Heiðarveg)|verkamannabústaðana]]. Verðið þótti hátt, eða 90 þúsund krónur. Björn vann við ýmis verslunarstörf þar til hann festi sig í Raftækjaverslun Haraldar Eiríkssonar. Þar vann hann frá 1947 til æviloka. | Björn, eins og hann var kallaður, byrjaði ungur að vinna í versluninni [[Fram]]. Einnig vann hann hjá [[Georg Gíslason|Georg Gíslasyni]] og [[Jóhannes Long|Jóhannesi Long]]. Á árunum 1939 til 1941 vann hann í verslun bróður síns á Norðfirði ásamt því að stunda sjóinn. Þegar fjölskyldan kom til baka til Eyja fluttist hún í kjallara Pétursborgar og bjó þar þangað til þau keyptu íbúðina að [[Heiðarvegur|Heiðarvegi]] 30, einn [[Verkamannabústaðir (við Heiðarveg)|verkamannabústaðana]]. Verðið þótti hátt, eða 90 þúsund krónur. Björn vann við ýmis verslunarstörf þar til hann festi sig í Raftækjaverslun Haraldar Eiríkssonar. Þar vann hann frá 1947 til æviloka. |
Núverandi breyting frá og með 5. janúar 2024 kl. 18:09
Einar Björn Sigurðsson var fæddur 25. október 1895 við Seyðisfjörð og 14. nóvember 1964. Hann ólst upp í Pétursborg hjá foreldrum sínum Sigurði Vigfússyni og Ingibjörgu Björnsdóttur. Kona hans var Ingveldur Jónsdóttir. Börn þeirra eru Ágústa og Alda. Þau byrjuðu að búa í Valhöll og svo í Hörgsholti. Í hvoru húsi eignuðust þau sitthvora dótturina.
Björn, eins og hann var kallaður, byrjaði ungur að vinna í versluninni Fram. Einnig vann hann hjá Georg Gíslasyni og Jóhannesi Long. Á árunum 1939 til 1941 vann hann í verslun bróður síns á Norðfirði ásamt því að stunda sjóinn. Þegar fjölskyldan kom til baka til Eyja fluttist hún í kjallara Pétursborgar og bjó þar þangað til þau keyptu íbúðina að Heiðarvegi 30, einn verkamannabústaðana. Verðið þótti hátt, eða 90 þúsund krónur. Björn vann við ýmis verslunarstörf þar til hann festi sig í Raftækjaverslun Haraldar Eiríkssonar. Þar vann hann frá 1947 til æviloka.
Björn hafði mikinn áhuga á leiklist, starfaði lengi með Leikfélagi Vestmannaeyja og átti þátt í stofnun Nýja leikfélagsins á þriðja áratugnum. Hann starfaði sem leiksviðsstjóri og hvíslari hjá Leikfélaginu. Björn var gerður að heiðursfélaga Leikfélags Vestmannaeyja nokkrum árum áður en hann dó.
Myndir
Heimildir
- Sigurður Hallvarðsson. Fjölskyldan í Pétursborg í Vestmannaeyjum. 2004.