„Geir Jón Þórisson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Geir Jón Þórisson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))

(10 millibreytingar ekki sýndar frá 4 notendum)
Lína 1: Lína 1:
Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn í Reykjavík fæddist 24. apríl 1952 og er uppalinn í Vestmannaeyjum. Eiginkona Geirs Jóns er Inga Traustadóttir, dóttir Trausta Guðjónssonar frá [[Skaftafell]]i. Börn þeirra eru Þórir Rúnar (f. 1978), Narfi Ísak (f.1981), Símon Geir (f. 1984) og Ragnheiður Lind (f. 1987).
[[Mynd:GeirJón.jpg|thumb|300px|''Geir Jón Þórisson.]]
'''Geir Jón Þórisson''' fæddist 24. apríl 1952. Foreldrar hans eru Þórir Geirmundsson og Kristrún Skúladóttir. Eiginkona Geirs Jóns er Guðrún Ingveldur (Inga) Traustadóttir, dóttir [[Trausti Guðjónsson (Skaftafelli)|Trausta Guðjónssonar]] frá [[Skaftafell]]i. Börn þeirra eru Þórir Rúnar (f. 1978), Narfi Ísak (f.1981), Símon Geir (f. 1984) og Ragnheiður Lind (f. 1987).

Geir Jón starfaði í lögreglunni hér í Eyjum um árabil og naut hylli hvers manns. Auk þess söng hann í kirkjukór [[Landakirkja|Landakirkju]] og tók þátt í starfi [[Hvítasunnukirkjan|Hvítasunnukirkjunnar]].
Þegar Geir Jón var 21 árs flutti hann til Vestmannaeyja. Geir Jón starfaði í lögreglunni hér í Eyjum um árabil og naut hylli hvers manns. Hann vann einnig um tíma sem verslunarstjóri í Virkni og Magnabúð. Auk þess söng hann í kirkjukór [[Landakirkja|Landakirkju]]. Geir Jón tók þátt í starfi [[Hvítasunnukirkjan|Hvítasunnukirkjunnar]] og lék körfubolta með [[ÍV]].

Fjölskyldan bjó að [[Stóragerði]] 7. Þau voru fyrstu eigendur þess húss en þau fluttu inn á níunda áratugnum. Þau fluttu til Reykjavíkur árið 1991 og búa í Grafarvogi.
[[Mynd:Glíma 1975.JPG|thumb|300px|Geir Jón og [[Gísli Óskarsson]] eigast við glímu á [[Þjóðhátíð]] 1975.]]
Fjölskyldan bjó að [[Stóragerði]] 7. Þau voru fyrstu eigendur þess húss en þau fluttu inn á níunda áratugnum. Þau fluttu til Reykjavíkur árið 1991 og bjuggu í Grafarvogi. Geir Jón var yfirlögregluþjónn í Reykjavík. Árið 2012 fluttu Geir Jón og Inga aftur til Vestmannaeyja.

[[Flokkur:Fólk]]
=Frekari umfjöllun=
'''Geir Jón Þórisson''' vélvirki, lögreglumaður, yfirlögregluþjónn fæddist 24. apríl 1952.

Foreldrar hans voru Þórir Geirmundarson frá Þorsteinshúsi á Ytri-Höfða í Stykkishólmi, bifreiðastjóri  og verkstjóri hjá Sorphirðu Reykjavíkur, f. 8. október 1927, d. 18. apríl 2019, og kona hans Kristrún Skúladóttir frá Langholtskoti í Hrunamannahreppi, húsfreyja, ritari, skrifstofukona, verkakona, f. 8. febrúar 1927, d. 24.  apríl 2014.

Geir Jón var með foreldrum sínum í æsku, en var í sveit í Efra-Langholti í Hrunamannahreppi á sumrum.

Hann lauk gagnfræðaprófi í  Verknámsskólanum í Brautarholti og Ármúla, nam vélvirkjun í Vélsmiðjunni Héðni og varð sveinn.

Geir Jón sótti um skeið nám  Tækniskólanum.

Hann nam síðar í Lögregluskóla ríkisins og lauk námi 1979.

Þá nam hann söng í Söngskólanum í Reykjavík og tók þar sönggráðu.

Geir Jón vann í Héðni í fjögur ár, rak [[Verslunin Virkni|Verslunina Virkni]] í Eyjum  1974 og síðan rak hann verslun [[Vélsmiðjan Magni|Vélsmiðjunnar Magna]] í um tvö ár. Síðan var hann lögreglumaður í Eyjum í sextán ár, var varðstjóri og lögreglufulltrúi.

Geir Jón varð aðalvarðstjóri í Reykjavík, þá aðstoðaryfirlögregluþjónn og yfirlögregluþjónn árið 2000, var 37 ár í lögreglustarfi.

Hann sat í stjórn [[Lögreglufélag Vestmannaeyja|Lögreglufélags Vestmannaeyja]], Landsambandi lögreglumanna, Félagi rannsóknalögreglumanna og var formaður Félags yfirlögregluþjóna. Þá sat hann í stjórn Lögreglukórsins og [[Karlakór Vestmannaeyja|Karlakórs Vestmannaeyja]].

Hann var um skeið forseti Gideonfélagsins og formaður í Gideondeildum.

Hann starfaði í Oddfellowreglunni í 40 ár.

Geir Jón var formaður Rauða Krossdeildarinnar í Eyjum og hefur setið í stjórn Náttúrulækningafélags Íslands.

Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu, gullmerki félags yfirlögregluþjóna og nokkrum heiðursmerkjum við komu erlendra þjóðhöfðingja.

Þau Guðrún Ingveldur giftu sig 1975, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í [[Stóragerði|Stóragerði 7]] frá 1974 til 1992, þá í Reykjavík til 2012, er þau fluttu til Eyja og  búa þar á [[Heiðarvegur|Heiðarvegi 46]].

I. Kona Geirs Jóns, (1. nóvember 1975), er [[Guðrún Ingveldur Traustadóttir]] (Inga) frá [[Hjarðarholt|Hjarðarholti við Vestmannabraut 69]], húsfreyja, sjúkraliði, f. 5. mars 1954.

Börn þeirra:

1. [[Þórir Rúnar Geirsson]] lögreglumaður, rafvirki í Eyjum, f. 1. júní 1978. Fyrrum kona hans Steinunn Steinþórsdóttir. Kona hans [[Guðrún María Jónsdóttir]].

2. [[Narfi Ísak Geirsson]] kennari búsettur í Kópavogi, f. 17. mars 1981. Fyrrum kona hans Guðrún Hlín Bragadóttir.

3. [[Símon Geir Geirsson]] kennari, lögreglumaður í Eyjum, f. 5. desember 1984. Fyrrum kona hans Eydís Berglind Baldvinsdóttir. Kona hans [[Júlíana Andersen]].

4. [[Ragnheiður Lind Geirsdóttir]] sjúkraliði, snyrtifræðingur í Eyjum, f. 30. júlí 1987. Maður hennar [[Brynjar Ólafsson]].
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Geir Jón.
*Íslendingabók.
*Morgunblaðið.
*Prestþjónustubækur.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Lögreglumenn]]
[[Flokkur: Yfirlögregluþjónar]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur: Íbúar við Stóragerði]]
[[Flokkur: Íbúar við Heiðarveg]]

Núverandi breyting frá og með 23. júlí 2022 kl. 20:41

Geir Jón Þórisson.

Geir Jón Þórisson fæddist 24. apríl 1952. Foreldrar hans eru Þórir Geirmundsson og Kristrún Skúladóttir. Eiginkona Geirs Jóns er Guðrún Ingveldur (Inga) Traustadóttir, dóttir Trausta Guðjónssonar frá Skaftafelli. Börn þeirra eru Þórir Rúnar (f. 1978), Narfi Ísak (f.1981), Símon Geir (f. 1984) og Ragnheiður Lind (f. 1987).

Þegar Geir Jón var 21 árs flutti hann til Vestmannaeyja. Geir Jón starfaði í lögreglunni hér í Eyjum um árabil og naut hylli hvers manns. Hann vann einnig um tíma sem verslunarstjóri í Virkni og Magnabúð. Auk þess söng hann í kirkjukór Landakirkju. Geir Jón tók þátt í starfi Hvítasunnukirkjunnar og lék körfubolta með ÍV.

Geir Jón og Gísli Óskarsson eigast við glímu á Þjóðhátíð 1975.

Fjölskyldan bjó að Stóragerði 7. Þau voru fyrstu eigendur þess húss en þau fluttu inn á níunda áratugnum. Þau fluttu til Reykjavíkur árið 1991 og bjuggu í Grafarvogi. Geir Jón var yfirlögregluþjónn í Reykjavík. Árið 2012 fluttu Geir Jón og Inga aftur til Vestmannaeyja.

Frekari umfjöllun

Geir Jón Þórisson vélvirki, lögreglumaður, yfirlögregluþjónn fæddist 24. apríl 1952.
Foreldrar hans voru Þórir Geirmundarson frá Þorsteinshúsi á Ytri-Höfða í Stykkishólmi, bifreiðastjóri og verkstjóri hjá Sorphirðu Reykjavíkur, f. 8. október 1927, d. 18. apríl 2019, og kona hans Kristrún Skúladóttir frá Langholtskoti í Hrunamannahreppi, húsfreyja, ritari, skrifstofukona, verkakona, f. 8. febrúar 1927, d. 24. apríl 2014.

Geir Jón var með foreldrum sínum í æsku, en var í sveit í Efra-Langholti í Hrunamannahreppi á sumrum.
Hann lauk gagnfræðaprófi í Verknámsskólanum í Brautarholti og Ármúla, nam vélvirkjun í Vélsmiðjunni Héðni og varð sveinn.
Geir Jón sótti um skeið nám Tækniskólanum.
Hann nam síðar í Lögregluskóla ríkisins og lauk námi 1979.
Þá nam hann söng í Söngskólanum í Reykjavík og tók þar sönggráðu.
Geir Jón vann í Héðni í fjögur ár, rak Verslunina Virkni í Eyjum 1974 og síðan rak hann verslun Vélsmiðjunnar Magna í um tvö ár. Síðan var hann lögreglumaður í Eyjum í sextán ár, var varðstjóri og lögreglufulltrúi.
Geir Jón varð aðalvarðstjóri í Reykjavík, þá aðstoðaryfirlögregluþjónn og yfirlögregluþjónn árið 2000, var 37 ár í lögreglustarfi.
Hann sat í stjórn Lögreglufélags Vestmannaeyja, Landsambandi lögreglumanna, Félagi rannsóknalögreglumanna og var formaður Félags yfirlögregluþjóna. Þá sat hann í stjórn Lögreglukórsins og Karlakórs Vestmannaeyja.
Hann var um skeið forseti Gideonfélagsins og formaður í Gideondeildum.
Hann starfaði í Oddfellowreglunni í 40 ár.
Geir Jón var formaður Rauða Krossdeildarinnar í Eyjum og hefur setið í stjórn Náttúrulækningafélags Íslands.
Hann var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu, gullmerki félags yfirlögregluþjóna og nokkrum heiðursmerkjum við komu erlendra þjóðhöfðingja.
Þau Guðrún Ingveldur giftu sig 1975, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Stóragerði 7 frá 1974 til 1992, þá í Reykjavík til 2012, er þau fluttu til Eyja og búa þar á Heiðarvegi 46.

I. Kona Geirs Jóns, (1. nóvember 1975), er Guðrún Ingveldur Traustadóttir (Inga) frá Hjarðarholti við Vestmannabraut 69, húsfreyja, sjúkraliði, f. 5. mars 1954.
Börn þeirra:
1. Þórir Rúnar Geirsson lögreglumaður, rafvirki í Eyjum, f. 1. júní 1978. Fyrrum kona hans Steinunn Steinþórsdóttir. Kona hans Guðrún María Jónsdóttir.
2. Narfi Ísak Geirsson kennari búsettur í Kópavogi, f. 17. mars 1981. Fyrrum kona hans Guðrún Hlín Bragadóttir.
3. Símon Geir Geirsson kennari, lögreglumaður í Eyjum, f. 5. desember 1984. Fyrrum kona hans Eydís Berglind Baldvinsdóttir. Kona hans Júlíana Andersen.
4. Ragnheiður Lind Geirsdóttir sjúkraliði, snyrtifræðingur í Eyjum, f. 30. júlí 1987. Maður hennar Brynjar Ólafsson.

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.