„Ævar Karlesson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Ævar Karlesson''' frá Akureyri, húsasmíðameistari, sjómaður fæddist þar 25. júlí 1946.
Foreldrar hans voru Karles Ferdinand Tryggvason frá Jórunnarstöðum í Eyj...) |
Ekkert breytingarágrip |

(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 12: | Lína 12: | ||
1. [[Kolbrún Lilja Ævarsdóttir]] húsfreyja, leiðbeinandi í skóla, nú starfsmaður á líkamsræktarstöð, f. 26. maí 1968. Maður hennar [[Sigurður Líndal Sveinsson]].
| 1. [[Kolbrún Lilja Ævarsdóttir]] húsfreyja, leiðbeinandi í skóla, nú starfsmaður á líkamsræktarstöð, f. 26. maí 1968. Maður hennar [[Sigurður Líndal Sveinsson]].

2. [[Linda Hrönn Ævarsdóttir]] húsfreyja, starfsmaður á barnaheimili, f. 6. maí 1969. Maður hennar [[Anton Gylfason|Gylfi ''Anton'' Gylfason]].
| 2. [[Linda Hrönn Ævarsdóttir]] húsfreyja, starfsmaður á barnaheimili, f. 6. maí 1969. Maður hennar [[Anton Gylfason|Gylfi ''Anton'' Gylfason]].

3. [[Þuríður Sif Ævarsdóttir]] býr á Eskifirði, | 3. [[Þuríður Sif Ævarsdóttir]] býr á Eskifirði, aðstoðarverslunarstjóri, f. 22. nóvember 1974. Sambúðarkona Helga Björk Einarsdóttir. | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | *Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. |
Núverandi breyting frá og með 26. október 2021 kl. 16:53
Ævar Karlesson frá Akureyri, húsasmíðameistari, sjómaður fæddist þar 25. júlí 1946.
Foreldrar hans voru Karles Ferdinand Tryggvason frá Jórunnarstöðum í Eyjafirði, iðnverkamaður, mjólkurfræðingur á Akureyri, f. 15. október 1909, d. 13. janúar 1991 og kona hans Lilja Jónasdóttir frá Leyningi í Eyjafirði, húsfreyja, f. 22. september 1917, d. 28. janúar 1993.
Ævar var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði húsasmíði á Akureyri, varð sveinn 1968 og meistari 1971.
Ævar vann til sjós og við iðn sína.
Þau Erna giftu sig 1967, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu á Akureyri, fluttu til Eyja 1971, bjuggu á Hásteinsvegi 56 við Gos 1973, fluttu til Reykjavíkur í nokkra mánuði í Gosinu 1973, en þá vann Ævar í Eyjum. Þau fluttu síðan til Akureyrar, bjuggu þar til 1983. Þá fluttu þau til Eyja, bjuggu við Bröttugötu 23.
Erna lést 1989. Ævar býr á Foldahrauni 42.
I. Kona Ævars, (1967), var Erna Sigurlásdóttir frá Reynistað, húsfreyja, verkakona f. 23. september 1947, d. 19. júní 1989.
Börn þeirra:
1. Kolbrún Lilja Ævarsdóttir húsfreyja, leiðbeinandi í skóla, nú starfsmaður á líkamsræktarstöð, f. 26. maí 1968. Maður hennar Sigurður Líndal Sveinsson.
2. Linda Hrönn Ævarsdóttir húsfreyja, starfsmaður á barnaheimili, f. 6. maí 1969. Maður hennar Gylfi Anton Gylfason.
3. Þuríður Sif Ævarsdóttir býr á Eskifirði, aðstoðarverslunarstjóri, f. 22. nóvember 1974. Sambúðarkona Helga Björk Einarsdóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Morgunblaðið 24. júní 1989. Minning Ernu..
- Prestþjónustubækur.
- Kolbrún.
- Ævar.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.