„Matthildur Ólafsdóttir (Lundi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Matthildur Ólafsdóttir''' á Lundi fæddist 27. maí 1897 og lést 9. júlí 1918. <br> Foreldrar hennar voru Ólafur Svipmundsson ...)
 
m (Verndaði „Matthildur Ólafsdóttir (Lundi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 5. desember 2016 kl. 19:28

Matthildur Ólafsdóttir á Lundi fæddist 27. maí 1897 og lést 9. júlí 1918.
Foreldrar hennar voru Ólafur Svipmundsson bóndi á Loftsölum í Mýrdal, síðar búsettur á Löndum, f. 27. maí 1867 á Loftsölum í Mýrdal, d. 1. júní 1946 í Eyjum, og kona hans Þorbjörg Pétursdóttir húsfreyja á Loftsölum, f. 1. september 1864 á Vatnsskarðshólum í Mýrdal, d. 18. ágúst 1903 á Loftsölum.
Fósturforeldrar hennar voru Gísli Engilbertsson verslunarstjóri í Juliushaab og kona hans Ragnhildur Þórarinsdóttir húsfreyja.

Bróðir Matthildar var
1. Árni Ólafsson, f. 18. janúar 1896, fórst með v/b Adólf VE-191 3. mars 1918, ókvæntur og barnlaus.

Matthildur var fóstruð á Lundi eftir lát Þorbjargar móður sinnar 1903, en lést 1918, á sama ári og bróðir hennar Árni.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.