„Guðrún Sigurðardóttir (Brekkuhúsi)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
(1 millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum) | |||
Lína 9: | Lína 9: | ||
Guðrún var með foreldrum sínum á Bryggjum 1870 og fluttist með þeim til Eyja 1879. Hún var með þeim 1880, og Valgerður amma hennar var komin til þeirra í Brekkuhús.<br> | Guðrún var með foreldrum sínum á Bryggjum 1870 og fluttist með þeim til Eyja 1879. Hún var með þeim 1880, og Valgerður amma hennar var komin til þeirra í Brekkuhús.<br> | ||
Guðrún lést 1883, 23 ára „yngisstúlka frá | Guðrún lést 1883, 23 ára „yngisstúlka frá Brekkuhúsi - af krampa“.<br> | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | *Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]. | ||
Lína 16: | Lína 16: | ||
*Manntöl. | *Manntöl. | ||
*Prestþjónustubækur.}} | *Prestþjónustubækur.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | ||
[[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk dáið á 19. öld]] | ||
[[Flokkur: Íbúar í Brekkuhúsi]] | [[Flokkur: Íbúar í Brekkuhúsi]] |
Núverandi breyting frá og með 16. ágúst 2015 kl. 18:01
Guðrún Sigurðardóttir eldri frá Brekkuhúsi fæddist 28. júní 1860 á Bryggjum í A-Landeyjum og lést 6. desember 1883.
Foreldrar hennar voru Sigurður Ögmundsson, þá bóndi á Bryggjum, síðar í Brekkuhúsi, en að lokum í Vesturheimi, f. 28. mars 1834, d. í Vesturheimi, og kona hans Sigríður Magnúsdóttir húsfreyja, f. 12. júní 1824, d. 5. september 1894.
Föðurbróðir Valgerðar var Guðmundur Ögmundsson vitavörður í Batavíu.
Systkini hennar í Eyjum voru:
1. Valgerður Sigurðardóttir húsfreyja í Jakobshúsi, f. 10. nóvember 1862, d. 21. nóvember 1906, fyrri kona Jakobs Tranberg.
2. Guðlaugur Sigurðsson bóndi og sjómaður í Brekkuhúsi, síðar í Vesturheimi, f. 6. október 1864, kvæntur Margréti Árnadóttur.
3. Guðrún Sigurðardóttir yngri, húsfreyja, f. 23. janúar 1866, d. 6. apríl 1937.
Guðrún var með foreldrum sínum á Bryggjum 1870 og fluttist með þeim til Eyja 1879. Hún var með þeim 1880, og Valgerður amma hennar var komin til þeirra í Brekkuhús.
Guðrún lést 1883, 23 ára „yngisstúlka frá Brekkuhúsi - af krampa“.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.