Valgeir Örn Garðarsson
Valgeir Örn Garðarsson, garðyrkjumaður, var um skeið garðyrkjustjóri í Garðabæ og framleiðslustjóri hjá Náttúrulækningafélagi Íslands í Hveragerði, fæddist 20. ágúst 1957 og lést 8. mars 1998.
Foreldrar hans Ingibergur Garðar Tryggvason, verkamaður, sjómaður, framkvæmdastjóri, bæjarstarfsmaður, f. 10. febrúar 1933, d. 13. desember 2012, og kona hans Kolbrún Hulda Sigurjónsdóttir, húsfreyja, starfsmaður á heimili fyrir aldraða og blinda, f. 25. febrúar 1936.
Börn Kolbrúnar Huldu og Garðars:
1. Tryggvi Friðrik Garðarsson flugvirki, f. 20. febrúar 1955. Kona hans Jayne Garðarsson.
2. Valgeir Örn Garðarsson garðyrkjumaður, f. 20. ágúst 1957, d. 9. mars 1998, ókvæntur.
3. Jóna Ósk Garðarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 3. mars 1959. Maður hennar Ágúst Guðmundsson.
4. Vilhjálmur Kristinn Garðarsson grafískur hönnuður í Danmörku, f. 3. september 1960. Kona hans Bente Höjgaard Garðarsson.
5. Sigurjón Ingi Garðarsson tölvunarfræðingur, f. 16. júlí 1970. Kona hans Erna Kristjánsdóttir.
Valgeir Örn var ókvæntur og barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.