Víðir Þorvarðarson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Víðir Þorvarðarson, viðskiptafræðingur, fjármálahagfræðingur, deildarstjóri hjá launadeild Bæjarins, fæddist 7. júlí 1992.
Foreldrar hans Þorvarður Vigfús Þorvaldsson, húsgagna- og húsasmíðameistari, veggfóðrunar- og dúklagningameistari, f. 20. nóvember 1956, d. 9. janúar 2015, og kona hans Guðrún Bjarný Ragnarsdóttir, húsfreyja, verkakona, verslunarmaður, f. 6. október 1942.

Börn Guðrúnar Bjarnýjar og Þorvarðar Vigfúsar:
1. Bjarný Þorvarðardóttir hárgreiðslukona, er einkaþjálfari, f. 19. september 1983. Maður hennar Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
2. Gauti Þorvarðarson hefur BA-próf í sálfræði, pípulagningamaður, sjómaður, f. 19. febrúar 1989. Sambúðarkona hans Elísabet Þorvaldsdóttir.
3. Víðir Þorvarðarson viðskiptafræðingur, fjármálahagfræðingur, deildarstjóri, f. 7. júlí 1992. Sambúðarkona hans Brigitta Kristín Bjarnadóttir.

Þau Brigitta Kristín hófu sambúð, hafa eignast eitt barn. Þau búa við Bröttugötu 3.

I. Sambúðarkona Víðis er Brigitta Kristín Bjarnadóttir, húsfreyja, er við við háskólanám í viðskiptafræði, f. 29. október 2001.
Barn þeirra:
1. Varði Víðisson, f. 12. september 2023.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.