Steinunn Alfreðsdóttir
Jónína Steinunn Alfreðsdóttir, húsfreyja, hjúkrunarritari á Lsp fæddist 1. apríl 1945.
Foreldrar hennar voru Alfreð Washington Þórðarson verkamaður, tónlistarmaður, f. 21. október 1912 í Reykjavík, d. 2. janúar 1994, og sambúðarkona hans Jónína Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 23. febrúar 1914 í A.-Landeyjum, d. 20. ágúst 1962.
Börn Jónínu og Alfreðs:
1. Bjarnfríður Ósk verzlunarmaður í Hafnarfirði, f. 23. desember 1940.
2. Alfreð Óskar húsasmíðameistari í Eyjum, f. 21. júlí 1942.
3. Árný Freyja húsfreyja í Þorlákshöfn, f. 31. desember 1943, d. 20. janúar 2020.
4. Ármann Þráinn starfsmaður í Straumsvík, f. 31. desember 1943.
5. Jónína Steinunn í Hafnarfirði, ritari, f. 1. apríl 1945.
Börn Alfreðs:
6. Þorsteinn Þórir Alfreðsson lögreglufulltrúi, f. 30. júlí 1931, d. 11. mars 1998.
7. Sveinbjörn (Alfreðsson) Benediktsson starfsmaður í Álverinu, f. 1. janúar 1933, d. 2. febrúar 1997. Hann varð kjörsonur Benedikts Guðjónssonar.
Þau Henning giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau skildu.
Steinunn býr í Hfirði.
I. Fyrrum maður Steinunnar var Henning Þorvaldsson, húsgagna- og húsasmíðameistari, f. 26. apríl 1943 á Þórsnesi í Eyjafirði, d. 24. september 2006. Foreldrar hans Þorvaldur Ásmundsson, f. 19. júlí 1920, d. 27. ágúst 1985, og Jóna Júlía Valsteinsdóttir, f. 28. júlí 1920, d. 29. janúar 2005.
Börn þeirra:
1. Jóna Júlía Henningsdóttir, f. 20. júlí 1963.
2. Henning Freyr Henningsson, f. 9. ágúst 1965.
3. Þorvaldur Jón Henningsson, f. 23. febrúar 1971.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Steinunn.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.