Sigríður Markúsdóttir (Sólheimatungu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Markúsdóttir frá Valstrýtu í Fljótshlíð, húsfreyja fæddist 26. september 1902 og lést 13. ágúst 1993 á Hrafnistu í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Markús Gíslason bóndi, f. 20. mars 1866 að Miðhúsum í Hvolhreppi, d. 28. september 1937, og kona hans Sigríður Aradóttir húsfreyja, f. 7. janúar 1875 á Valstrýtu, d. 25. apríl 1949.

Sigríður fór ung til starfa í Eyjum.
Þau Guðjón giftu sig 1928. Þau eignuðust níu börn. Þau bjuggu í Sólheimatungu við Brekastíg 14 1930 og enn 1944, en fluttu til Reykjavíkur 1945, bjuggu lengst í Karfavogi 13.
Guðjón drukknaði 1966 úti í Cork á Írlandi, þegar hann var að sinna störfum sínum á ms. Ísborgu.
Sigríður dvaldi að síðust á Hrafnistu í Reykjavík.
Hún lést 1993.

I. Maður Sigríðar, (29. september 1928), var Guðjón Karlsson frá Bakkakoti á Seltjarnarnesi, sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, f. 27. nóvember 1901, d. 15. maí 1966.
Börn þeirra:
1. Karl Guðmundur Guðjónsson tollvörður, bjó í Svíþjóð, f. 21. nóvember 1928 í Sóheimatungu, d. 30. nóvember 2020. Kona hans Siv Karlsson.
2. Sjöfn Guðjónsdóttir, húsfreyja, f. 22. febrúar 1930 í Sólheimatungu, Brekastíg 14. Maður hennar Steinar Magnússon.
3. Þórarinn Aðalsteinn Guðjónsson stýrimaður, f. 12. ágúst 1931 í Sólheimatungu. Kona hans Erla Jónasdóttir.
4. Rúnar Guðjónsson bóndi í Klauf í V.-Landeyjum, síðar á Hvolsvelli, f. 26. ágúst 1933 í Sólheimatungu, d. 20. maí 2017. Kona hans Hildur Ágústsdóttir.
5. Eygló Guðjónsdóttir, f. 12. febrúar 1935 í Sólheimatungu. Maður hennar Halldór Alexandersson.
6. Markús Sigurður Guðjónsson sjómaður, f. 15. janúar 1938 í Sólheimatungu, síðast í Fljótshlíð, d. 28. desember 1966.
7. Hrefna Guðjónsdóttir húsfreyja á Æsustöðum í Eyjafirði, f. 21. janúar 1940 í Sólheimatungu, d. 30. september 2006. Maður hennar Smári Steingrímsson.
8. Sigríður Guðjónsdóttir gjaldkeri, f. 16. júlí 1941 í Sólheimatungu. Maður hennar Jón Lárusson.
9. Garðar Guðjónsson, f. 20. ágúst 1942 í Sólheimatungu.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.